Mikil útflutningsverðmæti eru sköpuð á Bíldudal við Arnarfjörð með vinnslu á eldislaxi í vinnsluhúsi Arnarlax.

Ef einungis er litið til október- og nóvembermánaða námu útflutningsverðmæti frá þessu tæplega 300 manna þorpi um 5 milljörðum króna en Bíldudalur tilheyrir sveitarfélaginu Vesturbyggð eins og Patreksfjörður og Tálknafjörður. Athygli er vakin á þessum tölum hjá Bæjarins besta á Ísafirði (bb.is) en miðað er við að þúsund tonn af laxi skili um milljarði í útflutningstekjur.
Hjörtur Methúsalemsson, yfirmaður viðskiptaþróunardeildar hjá Arnarlaxi, staðfesti við Morgunblaðið að fimm þúsund tonn hefðu verið unnin í vinnsluhúsinu á Bíldudal í október og nóvember.
Október var metmánuður í vinnslunni þegar þar fóru í gegn þrjú þúsund tonn af eldislaxi á einum mánuði í fyrsta skipti. Í nóvember voru það því um tvö þúsund tonn. Jafnframt braut Arnarlax 100 þúsund tonna múrinn í framleiðslunni á síðasta ári, eins og kom fram á 200 mílum á mbl.is í síðasta mánuði, og mun það vera ígildi 500 milljón máltíða. Fyrirtækið var stofnað árið 2010.
Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag