Verðlagsstofuverð þorsks hækkar mikið

Kjaramál sjómanna | 6. janúar 2025

Verðlagsstofuverð þorsks hækkar mikið

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna og útvegsmanna í dag var ákveðið að hækka viðmiðunarverð þorsks um 8% og ýsu um 11,1% en viðmiðunarverð ufsa og karfa helst óbreytt, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Verðlagsstofu skiptaverðs.

Verðlagsstofuverð þorsks hækkar mikið

Kjaramál sjómanna | 6. janúar 2025

Sjómenn að störfum. Lágmarksverð til grundvallar launa sjómanna hækkar nokkuð, …
Sjómenn að störfum. Lágmarksverð til grundvallar launa sjómanna hækkar nokkuð, bæði fyrir þorsk og ýsu. mbl.is/Þorgeir

Á fundi hags­muna­sam­taka sjó­manna og út­vegs­manna í dag var ákveðið að hækka viðmiðun­ar­verð þorsks um 8% og ýsu um 11,1% en viðmiðun­ar­verð ufsa og karfa helst óbreytt, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef Verðlags­stofu skipta­verðs.

Á fundi hags­muna­sam­taka sjó­manna og út­vegs­manna í dag var ákveðið að hækka viðmiðun­ar­verð þorsks um 8% og ýsu um 11,1% en viðmiðun­ar­verð ufsa og karfa helst óbreytt, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef Verðlags­stofu skipta­verðs.

Viðmiðun­ar­verð, eða svo­kallað verðlag­stofu­verð, er lág­marks­verð við innri sölu út­gerða sem reka eig­in vinnslu og er til grund­vall­ar launa sjó­manna. Geta sjó­menn því átt von á mynd­ar­legri laun­aukn­ingu nú í upp­hafi vetr­ar­vertíðar­inn­ar, að því gefnu að afl­inn verði mynd­ar­leg­ur.

Viðmiðun­ar­verð slægðs fimm kílóa þorsks er nú 455,2 krón­ur og 372,15 krón­ur óslægt. Viðmiðun­ar­verðið á slægðum þorski er nú 16% hærra en í janú­ar 2024 og hef­ur lík­lega aldrei verið hærra.

Verð slægðrar tveggja kílóa ýsu í janú­ar verður 224,06 krón­ur en 211,89 krón­ur óslægt. Viðmiðun­ar­verð slægðrar og óslægðrar ýsu breytt­ist síðast nóv­em­ber 2023 þegar verð var lækkað um 9%. Viðmiðun­ar­verð á slægðri ýsu náði há­marki sínu í apríl til maí 2023 þegar það nam 280,97 krón­um.

Þá hef­ur verð á ufsa hald­ist óbreytt í 210,3 krón­um frá mars á síðasta ári. Hæst var það á tíma­bil­inu júní til nóv­em­ber 2023 þegar það var 233 krón­ur.

Viðmiðun­ar­verð karfa hef­ur er nú 180,68 krón­ur og hef­ur verið óbreytt frá og með júní síðastliðnum, en á tíma­bil­inu des­em­ber 2023 til maí 2024 var það 188,21 króna sem er jafn­framt hæsta lág­marks­verð sem sést hef­ur.

mbl.is