Skjálftinn fannst í byggð

Ljósufjallakerfi | 12. janúar 2025

Skjálftinn fannst í byggð

Skjálftinn sem reið yfir í Ljósufjallakerfinu klukkan 17.19 síðdegis reyndist að öllum líkindum hafa verið 2,9 að stærð.

Skjálftinn fannst í byggð

Ljósufjallakerfi | 12. janúar 2025

Flogið yfir Ljósufjöll á Snæfellsnesi í vetrarbúningi.
Flogið yfir Ljósufjöll á Snæfellsnesi í vetrarbúningi. mbl.is/Árni Sæberg

Skjálft­inn sem reið yfir í Ljósu­fjalla­kerf­inu klukk­an 17.19 síðdeg­is reynd­ist að öll­um lík­ind­um hafa verið 2,9 að stærð.

Skjálft­inn sem reið yfir í Ljósu­fjalla­kerf­inu klukk­an 17.19 síðdeg­is reynd­ist að öll­um lík­ind­um hafa verið 2,9 að stærð.

Frá þessu seg­ir Jó­hanna Malen Skúla­dótt­ir, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur á Veður­stof­unni, í sam­tali við mbl.is.

Erfitt reynd­ist að staðfesta ná­kvæma mæl­ingu á skjálft­an­um.

Seg­ir hún að íbú­ar á Mýr­um hafi haft sam­band við Veður­stof­una og látið vita að þeir hafi orðið skjálft­ans var­ir. Eng­ar slík­ar til­kynn­ing­ar hafa borist frá Akra­nesi eða Borg­ar­nesi.

Einn sá stærsti

Skjálft­inn, sem átti upp­tök sín skammt aust­ur af Grjótár­vatni í fjöll­un­um ofan við Mýr­ar í Borg­ar­f­irði, er einn sá stærsti frá upp­hafi mæl­inga á svæðinu.

Stærsti skjálft­inn fram til þessa var 3,2 að stærð og reið yfir að kvöldi 18. des­em­ber.

mbl.is