„Hefðbundið hlaup“ en eru þó á tánum

Grímsvötn | 13. janúar 2025

„Hefðbundið hlaup“ en eru þó á tánum

Ekki er búist við stóru jökulhlaupi úr Grímsvötnum sem kemur nú fram undan Skeiðarárjökli og rennur í Gígjukvísl en náttúruvársérfræðingar Veðurstofu Íslands eru þó aðeins meira á tánum en venjulega þar sem eldstöð Grímsvatna er tilbúin til að gjósa.

„Hefðbundið hlaup“ en eru þó á tánum

Grímsvötn | 13. janúar 2025

Frá Grímsvötnum.
Frá Grímsvötnum. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Ekki er bú­ist við stóru jök­ul­hlaupi úr Grím­svötn­um sem kem­ur nú fram und­an Skeiðar­ár­jökli og renn­ur í Gígju­kvísl en nátt­úru­vár­sér­fræðing­ar Veður­stofu Íslands eru þó aðeins meira á tán­um en venju­lega þar sem eld­stöð Grím­s­vatna er til­bú­in til að gjósa.

Ekki er bú­ist við stóru jök­ul­hlaupi úr Grím­svötn­um sem kem­ur nú fram und­an Skeiðar­ár­jökli og renn­ur í Gígju­kvísl en nátt­úru­vár­sér­fræðing­ar Veður­stofu Íslands eru þó aðeins meira á tán­um en venju­lega þar sem eld­stöð Grím­s­vatna er til­bú­in til að gjósa.

Þetta seg­ir Jó­hanna Malen Skúla­dótt­ir, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur hjá Veður­stofu Íslands.

Var erfitt að greina vegna úr­komu

Hún seg­ir GPS-tæki Jarðvís­inda­stofn­un­ar sem er á ís­hell­unni á Grím­svötn­um ekki hafa sent gögn til Veður­stof­unn­ar núna sök­um þess að það sé knúið á sól­ar­orku og geti því orðið raf­magns­laust á þess­um tíma árs.

Aðrir mæl­ar á borð við skjálfta­mæla og vatns­hæðarmæla hafa þó verið að nema hlaupóróa og vatns­hækk­un í Gígju­kvísl.

Jó­hanna seg­ir að erfitt hafi verið að greina hlaup­vatn í Gígju­kvísl sök­um úr­komu sem hef­ur verið á svæðinu und­an­farna daga en að nú virðist vera sem að vatn sé farið að skila sér þangað.

Senni­lega minna en í fyrra

„Við erum ekki að bú­ast við stóru hlaupi. Það er ekki inni­stæða fyr­ir miklu hlaupi. Hlaupið fyr­ir ári síðan var mjög viðráðan­legt og þetta verður senni­lega enn þá minna,“ seg­ir nátt­úru­vá­sér­fræðing­ur­inn og tek­ur fram að um „nokkuð hefðbundið hlaup“ sé að ræða enn sem komið er.

„En við fylgj­umst bara áfram mjög vel með og auðvitað þá hef­ur það komið fyr­ir að við þenn­an þrýstilétti sem verður þegar vatnið fer úr Grím­svötn­um að þá hafa komið eld­gos ef að eld­stöðin er til­bú­in til að gjósa og hún er það svo sem þannig við erum svona aðeins auka­lega á tán­um út af því,“ seg­ir Jó­hanna og held­ur áfram:

„En svona alla jafna þá ger­ist það nú ekki. Það gerðist síðast árið 2004 en síðan þá hafa orðið 13 jök­ul­hlaup án þess að gos komi í kjöl­farið. Síðasta gos var árið 2011 og það var ekki í kjöl­far jök­ul­hlaups. Þannig þetta er svona frek­ar und­an­tekn­ing á regl­unni held­ur en hitt, þannig við erum aðeins meira á tán­um af því þetta hef­ur gerst en við ger­um kannski ekki ráð fyr­ir gosi.“

Gasmeng­un­ar gæti orðið vart

Seg­ir Jó­hanna að á morg­un muni svo vatna­sér­fræðing­ar frá Veður­stof­unni fara á staðinn þar sem raf­leiðni verður mæld í Gígju­kvísl og mæl­ar og aðstæður at­hugaðar.

Þá nefn­ir hún að brenni­steins­meng­un geti einnig fylgt jök­ul­hlaup­um eins og þess­um.

„Það get­ur orðið vart gasmeng­un­ar við ár­far­veg­inn og aðallega við sporðinn á Skeiðar­ár­jökli. Það verður ef­laust mælt á morg­un ef að veður leyf­ir.“

mbl.is