Hlé á skjálftunum: Líkist frekar Gjálpargosinu

Bárðarbunga | 14. janúar 2025

Hlé á skjálftunum: Líkist frekar Gjálpargosinu

Svo virðist sem hlé hafi orðið á skjálftavirkninni í Bárðarbungu, eftir að öflug hrina jarðskjálfta hófst í eldstöðinni upp úr klukkan 6 í morgun.

Hlé á skjálftunum: Líkist frekar Gjálpargosinu

Bárðarbunga | 14. janúar 2025

Hrina skjálfta hófst í morgun í Bárðarbungu.
Hrina skjálfta hófst í morgun í Bárðarbungu. Kort/map.is

Svo virðist sem hlé hafi orðið á skjálfta­virkn­inni í Bárðarbungu, eft­ir að öfl­ug hrina jarðskjálfta hófst í eld­stöðinni upp úr klukk­an 6 í morg­un.

Svo virðist sem hlé hafi orðið á skjálfta­virkn­inni í Bárðarbungu, eft­ir að öfl­ug hrina jarðskjálfta hófst í eld­stöðinni upp úr klukk­an 6 í morg­un.

Síðasti skjálft­inn mæld­ist þar kl. 8.59 eft­ir að á und­an höfðu gengið fleiri en hundrað skjálft­ar á skömm­um tíma. Stærsti skjálft­inn reið yfir rétt upp úr klukk­an 8 og mæld­ist 4,9 að stærð.

Bene­dikt Gunn­ar Ófeigs­son, fag­stjóri af­lög­un­ar­mæl­inga hjá Veður­stof­unni, seg­ir þetta ólíkt því sem varð árið 2014, í aðdrag­anda eld­goss­ins sem braust út í ág­úst það ár.

Gjálp og Holu­hraun

Nú sjá­um við hlé á skjálfta­virkn­inni, rím­ar það við reynsl­una árið 2014?

„Nei, þetta er aðeins ólíkt. Hún byrjaði aðeins öðru­vísi og er kannski lík­ari og í Gjálp­argos­inu,“ seg­ir Bene­dikt um skjálfta­hrinu morg­uns­ins.

Eld­gos varð í Gjálp í Vatna­jökli árið 1996, miðja vegu milli Bárðarbungu og Grím­s­vatna.

„Gos­in í Gjálp og í Holu­hrauni eru þau tvö dæmi sem við höf­um séð áður þar sem er eitt­hvað sam­bæri­legt.“

Ólík­leg­ast að kvik­an leiti aft­ur í Holu­hraun

Spurður hvort talið sé lík­legra að kvik­an leiti í norður eða í suðvest­ur frá Bárðarbungu seg­ir hann:

„Það er erfitt að segja til um það. Ef kvika fer af stað þá myndi ég segja að það sé ólík­leg­asti mögu­leik­inn að hún fari aft­ur inn í Holu­hraun en það er þó ekk­ert úti­lokað. Svo eru Dyngju­háls og Köldu­kvísl mögu­leg­ir staðir og svo sjálf eld­stöðin í öskj­unni.“

mbl.is