Ágallar á framkvæmd kosninganna

Alþingiskosningar 2024 | 16. janúar 2025

Ágallar á framkvæmd kosninganna

„Landskjörstjórn telur brýnt að endurskoða með heildstæðum hætti framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu, bæði hér heima og erlendis, sérstaklega með það í huga að gera hana skilvirkari og öruggari í framkvæmd.“

Ágallar á framkvæmd kosninganna

Alþingiskosningar 2024 | 16. janúar 2025

Landskjörstjórn telur að gera eigi framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu skilvirkari og öruggari.
Landskjörstjórn telur að gera eigi framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu skilvirkari og öruggari. Morgunblaðið/Karítas

„Lands­kjör­stjórn tel­ur brýnt að end­ur­skoða með heild­stæðum hætti fram­kvæmd utan­kjör­fund­ar­at­kvæðagreiðslu, bæði hér heima og er­lend­is, sér­stak­lega með það í huga að gera hana skil­virk­ari og ör­ugg­ari í fram­kvæmd.“

„Lands­kjör­stjórn tel­ur brýnt að end­ur­skoða með heild­stæðum hætti fram­kvæmd utan­kjör­fund­ar­at­kvæðagreiðslu, bæði hér heima og er­lend­is, sér­stak­lega með það í huga að gera hana skil­virk­ari og ör­ugg­ari í fram­kvæmd.“

Svo seg­ir í um­sögn lands­kjör­stjórn­ar um fram­kvæmd alþing­is­kosn­ing­anna sem fram fóru 30. nóv­em­ber sl. en um­sögn­inni var skilað til Alþing­is í gær. Þar tek­ur níu manna und­ir­bún­ings­nefnd Alþing­is við kefl­inu. Í nefnd­inni sitja tveir þing­menn frá Sjálf­stæðis­flokki, Viðreisn og Sam­fylk­ingu, en einn frá Miðflokki, Flokki fólks­ins og Fram­sókn­ar­flokki.

Í um­sögn­inni kem­ur m.a. fram að þar sem um­sýsla við utan­kjör­fund­ar­at­kvæðagreiðslu sé um­fangs­mik­il, fram­kvæmd­in viðkvæm fyr­ir ut­anaðkom­andi þátt­um, sér­stak­lega hvað varði flutn­ing eða send­ing­ar at­kvæðis­bréfa til meðferðar og eft­ir at­vik­um til taln­ing­ar, sé hætta á að at­kvæði mis­far­ist eða verði ekki tek­in til greina af ástæðum sem ekki eru á ábyrgð kjós­and­ans sjálfs.

Nokkr­ir ann­mark­ar á fram­kvæmd kosn­ing­anna

Lands­kjör­stjórn til­grein­ir í um­sögn sinni nokkra ann­marka á fram­kvæmd kosn­ing­anna. Seg­ir hún að heild­armat á ann­mörk­un­um og hvort ætla megi að þeir hafi haft áhrif á úr­slit kosn­ing­anna sé hjá Alþingi skv. kosn­inga­lög­um og til­grein­ir hún þrjú atriði sem telja verði ann­marka á fram­kvæmd kosn­ing­anna. Öll varða þau Suðvest­ur­kjör­dæmi.

Fram kem­ur að yfir­kjör­stjórn Suðvest­ur­kjör­dæm­is hafi upp­lýst lands­kjör­stjórn um að 89 ágrein­ings­seðlar sem af­hent­ir voru lands­kjör­stjórn hafi ekki verið færðir inn í loka­töl­ur at­kvæða úr kjör­dæm­inu og þar af leiðandi hafi þeirra ekki verið getið í taln­ing­ar­skýrslu sem send var lands­kjör­stjórn að kosn­ing­um lokn­um. Seg­ir í um­sögn­inni að tveir þeirra at­kvæðaseðla hafi verið úr­sk­urðaðir gild at­kvæði af yfir­kjör­stjórn kjör­dæm­is­ins, en þrátt fyr­ir það hafi þau at­kvæði ekki verið tal­in með gild­um at­kvæðum. Þá hafi hin at­kvæðin, 87 tals­ins, ekki verið tal­in með ógild­um at­kvæðum.

„Er ljóst að fram­an­greint fól í sér ann­marka á taln­ingu yfir­kjör­stjórn­ar í Suðvest­ur­kjör­dæmi,“ seg­ir í um­sögn­inni.

Þá er til­tekið að 5. des­em­ber sl. hafi full­trúi yfir­kjör­stjórn­ar Suðvest­ur­kjör­dæm­is af­hent lands­kjör­stjórn tvö um­slög árituð til lands­kjör­stjórn­ar. Í um­slög­un­um voru utan­kjör­fund­ar­at­kvæði, ann­ars veg­ar frá yfir­kjör­stjórn Hafna­fjarðarbæj­ar og hins veg­ar frá yfir­kjör­stjórn Mos­fells­bæj­ar, sem rang­lega höfðu verið sett í um­slag merkt lands­kjör­stjórn.

Þess í stað hefði átt að setja at­kvæðin í þar til gert „At­kvæðaum­slag“ merkt yfir­kjör­stjórn kjör­dæm­is­ins og af­henda henni það. Seg­ir að um leið og lands­kjör­stjórn hafi opnað um­slög­in og séð hvað þau höfðu að geyma, hafi hún haft sam­band við yfir­kjör­stjórn Suðvest­ur­kjör­dæm­is og óskað þess að hún sækti um­slög­in, enda ekki á hendi lands­kjör­stjórn­ar að meðhöndla utan­kjör­fund­ar­at­kvæði.

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag

mbl.is