Flugfreyja rekin fyrir að hrista rassinn um borð

TikTok | 20. janúar 2025

Flugfreyja rekin fyrir að hrista rassinn um borð

Nella Diala, fyrrverandi flugfreyju hjá bandaríska flugfélaginu Alaska Airlines, var sagt upp störfum skömmu eftir að hún deildi myndskeiði af sér á samfélagsmiðlasíðunni TikTok að hrista rassinn um borð vélar flugfélagsins.

Flugfreyja rekin fyrir að hrista rassinn um borð

TikTok | 20. janúar 2025

Nella Diala starfaði hjá bandaríska flugfélaginu Alaska Airlines.
Nella Diala starfaði hjá bandaríska flugfélaginu Alaska Airlines. Skjáskot/TikTok

Nella Diala, fyrr­ver­andi flug­freyju hjá banda­ríska flug­fé­lag­inu Alaska Air­lines, var sagt upp störf­um skömmu eft­ir að hún deildi mynd­skeiði af sér á sam­fé­lags­miðlasíðunni TikT­ok að hrista rass­inn um borð vél­ar flug­fé­lags­ins.

Mynd­skeiðið, sem birt­ist á sam­fé­lags­miðlasíðunni þann 17. nóv­em­ber síðastliðinn, vakti fljótt mikla at­hygli, alls ekki já­kvæða, net­verja og voru marg­ir sem sögðu þetta óviðeig­andi og niður­lægj­andi fyr­ir flug­fé­lagið.

Diala hafði starfað sem flug­freyja í sex mánuði þegar hún ákvað að búa til stutt mynd­skeið til að drepa tím­ann á milli flug­ferða, en eng­ir farþegar voru um borð þegar hún „twerkaði“ fyr­ir mynda­vél­ina.

„Ghetto bih till i D-I-E, dont let the uni­form fool you,“ skrifaði hún við mynd­skeiðið, en það má gróf­lega þýða sem „gettó-tík þar til ég dey, ekki láta ein­kenn­is­bún­ing­inn blekkja ykk­ur.“

Diala, sem bjóst ekki við að missa starfið vegna 15 sek­úndna klippu, hef­ur nú sett upp styrkt­ar­reikn­ing á GoFundMe til að vega upp tekjutapið. Hún hef­ur safnað tæp­um 3000 banda­ríkja­döl­um eða sem sam­svar­ar um 400 þúsund­um í ís­lensk­um krón­um. 

mbl.is