Stefnt að afgreiðslu Íslandsbankasölu á vorþingi

Stefnt að afgreiðslu Íslandsbankasölu á vorþingi

Eitt af þeim málum sem ný ríkisstjórn hefur boðað er sala á Íslandsbanka. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, segir stefnt að því að klára sölu bankans á yfirstandandi vorþingi.

Stefnt að afgreiðslu Íslandsbankasölu á vorþingi

Sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka | 21. janúar 2025

Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra.
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra. Samsett mynd

Eitt af þeim mál­um sem ný rík­is­stjórn hef­ur boðað er sala á Íslands­banka. Daði Már Kristó­fers­son, fjár­málaráðherra, seg­ir stefnt að því að klára sölu bank­ans á yf­ir­stand­andi vorþingi.

Eitt af þeim mál­um sem ný rík­is­stjórn hef­ur boðað er sala á Íslands­banka. Daði Már Kristó­fers­son, fjár­málaráðherra, seg­ir stefnt að því að klára sölu bank­ans á yf­ir­stand­andi vorþingi.

Þá seg­ir hann að byggt verði á grunni þeirr­ar vinnu sem Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­um fjár­málaráðherra, lét vinna í fjár­málaráðuneyt­inu.

„Þetta þarf að fara fyr­ir þingið og fá þar þing­lega meðferð, verði gegn­sætt og hafið yfir all­an vafa. Eins og þing­störf­um er háttað verður þetta síðar í vor, vona ég,“ seg­ir Daði.

Að sögn hans bygg­ir sal­an á grunni þeirr­ar vinnu sem þegar hef­ur verið unn­in.

„Já við mun­um fara eft­ir því plani sem búið var að und­ir­byggja að mestu leyti. Við erum að vinna í mál­inu eins og er. Það er verið að móta það og ég mun kynna það ít­ar­lega þegar þar að kem­ur. Þetta er gríðarlega mik­il­vægt mál þannig að þetta mun fá ít­ar­lega kynn­ingu þegar það verður lagt fram,“ seg­ir Daði.

Og voru all­ir sam­stíga um að selja bank­ann í þess­ari rík­is­stjórn?

„Já.“

mbl.is