Brotist inn hjá bróður Snorra

TikTok | 24. janúar 2025

Brotist inn hjá bróður Snorra

Íslendingar láta ljós sitt skína á TikTok þar sem hugmyndaauðgi, húmor og óvæntar uppákomur halda áhorfendum við skjáinn. Hér er yfirlit yfir það sem vakti áhuga hjá fólki í vikunni.

Brotist inn hjá bróður Snorra

TikTok | 24. janúar 2025

Yfirlit yfir það sem vakti áhuga hjá fólki á TikTok …
Yfirlit yfir það sem vakti áhuga hjá fólki á TikTok í vikunni. Samsett mynd

Íslend­ing­ar láta ljós sitt skína á TikT­ok þar sem hug­mynda­auðgi, húm­or og óvænt­ar uppá­kom­ur halda áhorf­end­um við skjá­inn. Hér er yf­ir­lit yfir það sem vakti áhuga hjá fólki í vik­unni.

Íslend­ing­ar láta ljós sitt skína á TikT­ok þar sem hug­mynda­auðgi, húm­or og óvænt­ar uppá­kom­ur halda áhorf­end­um við skjá­inn. Hér er yf­ir­lit yfir það sem vakti áhuga hjá fólki í vik­unni.

Íslenska landsliðið í hand­bolta þakk­ar stuðning­inn

Hand­bolta­landslið Íslands hef­ur þakkað stuðnings­mönn­um sín­um fyr­ir ómet­an­leg­an stuðning eft­ir glæsi­leg­an sig­ur á móti Egyptalandi í mill­iriðli á HM.

Inn­brotsþjóf­ur með smekk

Brot­ist var inn á skrif­stofu Bergþórs Más­son­ar, bróður Snorra Más­son­ar. Þjóf­ur­inn virt­ist hafa ákveðinn smekk fyr­ir því sem hann tók. Að sögn Bergþórs var aðeins stolið tveim­ur hlut­um, þar af er ann­ar enn ófund­inn. 

Skemmti­leg óléttuþrá

Teboðsvin­kon­urn­ar Birta Líf Ólafs­dótt­ir og Sunn­eva Eir Ein­ars­dótt­ir skelltu sér í Hl­ölla­bát, en að sögn Birtu Líf­ar er Hl­ölla­bát­ur ein af henn­ar helstu óléttuþráum.

Ger­ist kær­ast­an þín sek um þetta?

Logi Páll Aðal­steinns­son, sem er einn af lyk­il­mönn­um á bakvið hljóm­sveit­inna Hubba Bubba hljóm­sveit­ar­inn­ar, ger­ir kald­hæðnis­legt grín að því hvernig kon­ur í sam­bönd­um geta hagað sér þegar þær eru pirraðar.

Þetta kann­ast mömm­ur við

Útvarps­maður­inn Seba­stí­an Óli deildi skemmti­legu mynd­bandi á TikT­ok þar sem hann létt­ir lund­ina með því að gera grín að því hvernig mömm­ur geta brugðist við þegar þær þurfa að bíða eft­ir því að af­kvæm­in komi sér að verki.

Þekk­ir þú jakk­ann?

Selma Friðriks­dótt­ir klæðist lulu­lemon-jakka með hlé­b­arðamynstri sem hef­ur farið eins og eld­ur um sinu á TikT­ok. Í mynd­bandi sínu seg­ist hún búa í landi þar sem fólk kunni ekki að meta hversu sér­stak­ur jakk­inn er.

Borðar sus­hi í Reyn­is­fjöru

Banda­ríski áhrifa­vald­ur­inn Soda Ak­ht­ar vakti at­hygli þegar hann deildi reynslu sinni af því að smakka ís­lenskt sus­hi á hinu ein­staka nátt­úru­undri, Reyn­is­fjöru.

mbl.is