Áttburarnir orðnir 16 ára

Poppkúltúr | 27. janúar 2025

Áttburarnir orðnir 16 ára

Fjölburar Nadyu Suleman fögnuðu 16 ára afmæli sínu á sunnudag.

Áttburarnir orðnir 16 ára

Poppkúltúr | 27. janúar 2025

Nadya Suleman var í harðlega gagn­rýnd fyr­ir að hafa gengið …
Nadya Suleman var í harðlega gagn­rýnd fyr­ir að hafa gengið með öll börn­in. Samsett mynd

Fjöl­bur­ar Nadyu Su­lem­an fögnuðu 16 ára af­mæli sínu á sunnu­dag.

Fjöl­bur­ar Nadyu Su­lem­an fögnuðu 16 ára af­mæli sínu á sunnu­dag.

Su­lem­an, sem flest­ir þekkja kannski bet­ur und­ir heit­inu Octomom eða átt­bur­amamm­an, komst í heim­spress­una árið 2008 þegar hún varð ófrísk af átt­bur­um með hjálp tækni­frjóvg­un­ar, ver­andi ein­stæð og at­vinnu­laus sex barna móðir.

Hinn 26. janú­ar árið 2009 fæddi Su­lem­an átt­bur­ana og varð því 14 barna móðir. Í heim­inn komu sex dreng­ir og tvær stúlk­ur, þau Noah, Maliyah, Isaiah, Nariyah, Jonah, Makai, Josiah og Jerem­iah.

Nú eru átt­bur­arn­ir orðnir 16 ára og í til­efni þess deildi Su­lem­an fal­legri færslu og mynd af átt­burun­um fyr­ir utan heim­ili þeirra í Orange-sýslu í Kali­forn­íu.

„Til ham­ingju með 16 ára af­mælið elsku Noah, Isaiah, Nariyah, Maliyah, Jerem­iah, Josiah, Jonah og Makai. Þið eruð elskuð meira en orð fá lýst. Ég er svo lán­söm að hafa ykk­ur í lífi mínu og spennt og þakk­lát fyr­ir ferðalagið sem við erum að leggja af stað í.

Guð hef­ur vakað yfir ykk­ur frá fæðingu og er með stór áform fyr­ir hvert og eitt ykk­ar,” skrifaði Su­lem­an sem endaði færsl­una með því að vitna í þekkta barna­bók, Love You For­ever, eft­ir Robert Munsch.

mbl.is