Dreifði nektarmyndum af barnsmóður sinni

Kynferðisbrot | 27. janúar 2025

Dreifði nektarmyndum af barnsmóður sinni

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot og stórfelldar ærumeiðingar gagnvart barnsmóður sinni og fyrrverandi sambýliskonu með því að hafa birt kynferðislegar myndir af henni á Facebook og á Snapchat ásamt smánandi texta.

Dreifði nektarmyndum af barnsmóður sinni

Kynferðisbrot | 27. janúar 2025

Maðurinn er ákærður fyrir að hafa dreift nektarmyndum af barnsmóður …
Maðurinn er ákærður fyrir að hafa dreift nektarmyndum af barnsmóður sinni á Facebook og fleiri samfélagsmiðlum. Samsett mynd

Karl­maður hef­ur verið ákærður fyr­ir kyn­ferðis­brot og stór­felld­ar ærumeiðing­ar gagn­vart barn­s­móður sinni og fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu með því að hafa birt kyn­ferðis­leg­ar mynd­ir af henni á Face­book og á Snapchat ásamt smán­andi texta.

Í ákæru embætt­is héraðssak­sókn­ara kem­ur fram að maður­inn hafi birt fimm mynd­ir af kon­unni nak­inni, en að hann hafi krotað yfir brjóst og kyn­færi á mynd­un­um. Þá hótaði hann jafn­framt að setja mynd­ir af henni inn á síðu sem er þekkt fyr­ir að hýsa mynd­ir af þess­um toga.

Í ákær­unni má sjá að málið virðist tengj­ast deil­um fólks­ins um börn þeirra. Þannig hafði hann meðal ann­ars skrifað á eina mynd­ina, sem sýndi kon­una nakta niður fyr­ir mjaðmir: „Hún not­ar börn­in“ og „Þá má allt“.

Auk þess sem kraf­ist er þess að maður­inn verði dæmd­ur til refs­ing­ar fer kon­an fram á 1,5 millj­ón­ir í miska­bæt­ur vegna mynd­birt­ing­ar manns­ins. Málið er rekið fyr­ir Héraðsdómi Norður­lands vestra.

mbl.is