Ekkert var til sparað á sjö ára afmælinu

Frægar fjölskyldur | 27. janúar 2025

Ekkert var til sparað á sjö ára afmælinu

Í gær hélt Kim Kardashian upp á sjö ára afmæli dóttur þeirra Kanye West, Chicago, með kúrekaþema og glæsileika. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún heldur öfundsvert afmæli fyrir barnið sitt enda ekki þekkt fyrir annað en að gera hlutina með pompi og prakt.

Ekkert var til sparað á sjö ára afmælinu

Frægar fjölskyldur | 27. janúar 2025

Henni er margt til lista lagt henni Kim Kardsashian og …
Henni er margt til lista lagt henni Kim Kardsashian og hún kann sko að halda upp á afmæli barnanna sinna. ETIENNE LAURENT/AFP

Í gær hélt Kim Kar­dashi­an upp á sjö ára af­mæli dótt­ur þeirra Kanye West, Chicago, með kú­rekaþema og glæsi­leika. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún held­ur öf­undsvert af­mæli fyr­ir barnið sitt enda ekki þekkt fyr­ir annað en að gera hlut­ina með pompi og prakt.

Í gær hélt Kim Kar­dashi­an upp á sjö ára af­mæli dótt­ur þeirra Kanye West, Chicago, með kú­rekaþema og glæsi­leika. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún held­ur öf­undsvert af­mæli fyr­ir barnið sitt enda ekki þekkt fyr­ir annað en að gera hlut­ina með pompi og prakt.

Af­mæl­is­barnið klædd­ist hvítri kög­ur­skyrtu með áletr­un­inni „Chicago West“ á bak­inu. Í stíl við skyrt­una bar hún hvít­an kú­reka­hatt og klædd­ist hvít­um og drapp­lituðum kög­ur­bux­um. Í In­sta­gram-sögu Kar­dashi­an sýn­ir dótt­ir henn­ar föt­in und­ir lag­inu Texas Hold 'Em með Beyoncé.

Yngri bróðir Chicago, Psalm sem er fimm ára, birt­ist einnig á mynd ásamt frænda sín­um Tatum, tveggja ára, syni Khloé Kar­dashi­an.

Svo var það vita­skuld drottn­ing­in sjálf, Kim Kar­dashi­an, sem klædd­ist svörtu leðri í til­efni dags­ins, með kú­reka­hatt og í frá­hnepptri skyrtu. 

Um­gjörðin var hin glæsi­leg­asta en í stuttu mynd­skeiði sýn­ir hún frá lang­borði með bleik­um dúk skreytt­um blóm­um og í stað stóla voru hey­bagg­ar með bleikri ábreiðu. Af­mæliskak­an sjálf var kú­reka­stíg­vél með aldri Chicago og nafni henn­ar.

People

Chicago West dansar við lagið Texas Hold 'Em með Beyoncé.
Chicago West dans­ar við lagið Texas Hold 'Em með Beyoncé. Skjá­skot/​In­sta­gram
Nafnið hennar áletrað aftan á skyrtuna.
Nafnið henn­ar áletrað aft­an á skyrt­una. Skjá­skot/​In­sta­gram
Allir gestir afmælisveislunnar voru í kúrekaþema.
All­ir gest­ir af­mæl­is­veisl­unn­ar voru í kú­rekaþema. Skjá­skot/​In­sta­gram
Kim Kardashian passaði sig vitaskuld á því að vera nógu …
Kim Kar­dashi­an passaði sig vita­skuld á því að vera nógu kynþokka­full í til­efni dags­ins. Skjá­skot/​In­sta­gram
Psalm sem er fimm ára birtist einnig á mynd ásamt …
Psalm sem er fimm ára birt­ist einnig á mynd ásamt frænda sín­um Tatum, tveggja ára, syni Khloé Kar­dashi­an. Skjá­skot/​In­sta­gram
Fráhneppt skyrta er skilyrði í barnaafmæli.
Frá­hneppt skyrta er skil­yrði í barna­af­mæli. Skjá­skot/​In­sta­gram
Kakan er glæsileg.
Kak­an er glæsi­leg. Skjá­skot/​In­sta­gram
Skemmtilegt afmælisborðið og heybaggastólar.
Skemmti­legt af­mæl­is­borðið og hey­bagga­stól­ar. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is