Buðust til að senda hermenn til Grænlands

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 28. janúar 2025

Buðust til að senda hermenn til Grænlands

Danir hafa fullan stuðning Evrópu í Grænlandsdeilunni að sögn forsætisráðherra Danmerkur, sem hefur verið á ferð um Evrópu í dag.

Buðust til að senda hermenn til Grænlands

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 28. janúar 2025

Metta Frederiksen, forsætisráðherra Dana, ræddi við Emmanuel Macron Frakklandsforseta í …
Metta Frederiksen, forsætisráðherra Dana, ræddi við Emmanuel Macron Frakklandsforseta í París. AFP

Dan­ir hafa full­an stuðning Evr­ópu í Græn­lands­deil­unni að sögn for­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur, sem hef­ur verið á ferð um Evr­ópu í dag.

Dan­ir hafa full­an stuðning Evr­ópu í Græn­lands­deil­unni að sögn for­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur, sem hef­ur verið á ferð um Evr­ópu í dag.

Frakk­ar buðust til að senda franskt herlið til Græn­lands vegna hót­ana Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta en Dan­ir afþökkuðu.

Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur, seg­ir það öll­um ljóst að sam­vinna milli Evr­ópu og Banda­ríkj­anna verði „önn­ur“ nú þegar að Trump er tek­inn við sem for­seti.

Evr­ópu­sam­bandið bauð Marco Ru­bio, ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna, í gær á fund í Bus­sel til að ræða mál­in. Fund­ur­inn var hald­inn í dag.

Ru­bio mætti ekki þrátt fyr­ir boð um að sækja fund­inn í gegn­um fjar­skipta­búnað, að sögn Politico.

Frederik­sen á ferð og flugi

Frederik­sen er í dag á ferð og flugi um Evr­ópu þar sem hún reyn­ir að tryggja stuðning Evr­ópu­landa og Atlants­hafs­banda­lags­ríkja í deilu Dana og Trumps. Sam­hliða þessu reyn­ir hún að styrkja varn­ir banda­lags­ins á norður­slóðum.

Deil­an snýr að Græn­landi.

Á sunnu­dag var greint frá því að Frederik­sen hefði í skyndi boðað ráðherra Norður­landa í kvöld­verð í kjöl­far þess að Trump hafði ít­rekað að hann hygðist leggja und­ir sig Græn­land, sem lýt­ur enn dönsku krún­unni en hef­ur þó sjálf­stjórn.

Trump hef­ur ekki úti­lokað beit­ingu hervalds til að ná Græn­landi á sitt band en hann seg­ir yf­ir­ráð á eyj­unni nauðsyn­leg upp á þjóðarör­yggi Banda­ríkj­anna. 

Olaf Scholz Þýskalandskanslari tók á móti Mette Frederiksen, forsætisráðherra Dana, …
Olaf Scholz Þýska­landskansl­ari tók á móti Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráðherra Dana, í Berlín. AFP

Stakk upp á að senda herlið til Græn­lands

Í dag hélt Frederik­sen til Par­ís­ar, Berlín­ar og Brus­sel. Danska frétta­veit­an Ritzau hef­ur eft­ir ráðherr­an­um að Dan­mörk fái „full­an stuðning“ frá Evr­ópu­lönd­um við að viðhalda sinni land­helgi. 

„Þetta voru ótrú­lega góðir fund­ir í bæði Berlín og Par­ís. Það er mik­il­vægt að við stönd­um sam­an í Evr­ópu,“ sagði Frederik­sen eft­ir að hafa fundað með Olaf Scholz Þýska­landskansl­ara og Emm­anu­el Macron Frakk­lands­for­seta.

„Ef Dan­mörk kall­ar á hjálp, verður Frakk­land mætt,“ sagði Macron við fjöl­miðla að fund­in­um lokn­um.

Jean-Noël Barrot, ut­an­rík­is­ráðherra Frakk­lands, sagði við Sud Radio að Frakk­ar hefðu rætt að senda her­menn til Græn­lands en tók fram að Dan­ir hefðu afþakkað. 

Eru fleka­skil­in að breikka?

Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóri Atlants­hafs­banda­lags­ins, faðmaði danska for­sæt­is­ráðherr­ann þegar hún lenti í Brus­sel.

„All­ir í Evr­ópu geta séð að það verður önn­ur sam­vinna með Banda­ríkj­un­um núna. Það er að minnsta kosti sá tónn sem við heyr­um frá Washingt­on hvað varðar viðskipti og efna­hags­lega sam­vinnu. Hverj­ar af­leiðing­arn­ar af því eru vit­um við ekki enn,“ sagði Frederik­sen við fjöl­miðla áður en hún gekk á fund Rutte.

Að fundi þeirra lokn­um sagði Frederik­sen að viðvera Atlants­hafs­banda­lags­ins yrði auk­in á norður­slóðum.

„Við vænt­um enn meiri viðveru bæði frá rúss­nesku og kín­versku hliðinni, og ekki já­kvæðrar,“ sagði hún einnig.

Forsætisráðherra Danmerkur og framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins kveðjast í Brussel.
For­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur og fram­kvæmda­stjóri Atlants­hafs­banda­lags­ins kveðjast í Brus­sel. AFP

Ný dönsk varðskip

Í gær kynnti varn­ar­málaráðherra Dan­merk­ur einnig nýtt frum­varp sem kveður m.a. á um þrjú ný dönsk varðskip sem eigi að standa vörð um norður­slóðir. Gert er ráð fyr­ir að frum­varpið allt kosti um 300 millj­arða ís­lenskra króna, og von er á enn fleiri frum­vörp­um er varða varn­ar­mál.

En stríðssjóður Dan­merk­ur er nán­ast tóm­ur, að sögn varn­ar­málaráðherr­ans Troels Lund Poul­sen. „Þannig að við kom­um til með að sjá hvernig á að afla frek­ari tekna,“ sagði hann.

mbl.is