Grænlendingar vísa Trump á bug

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 29. janúar 2025

Grænlendingar vísa Trump á bug

Skoðanakönnun, sem samfélagskönnuðurinn Verian framkvæmdi fyrir danska dagblaðið Berlingske og grænlenska blaðið Sermitsiaq, og hið fyrrnefnda greindi frá á vefsíðu sinni í gærkvöldi, leiðir í ljós að 85 prósent Grænlendinga, sem eru 57.000 talsins, eru því mótfallin að sameinast Bandaríkjunum, þvert á sannfæringu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.

Grænlendingar vísa Trump á bug

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 29. janúar 2025

Mette Frederiksen kveður Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins NATO, að loknum …
Mette Frederiksen kveður Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins NATO, að loknum fundi þeirra í Brussel í gær þar sem varnarmál voru til umræðu, mikið til innblásin af áhuga Bandaríkjaforseta á Grænlandi sem hann kveðst ekki útiloka að taka með valdi ef svo ber undir. AFP/Mads Claus Rasmussen

Skoðana­könn­un, sem sam­fé­lags­könnuður­inn Ver­i­an fram­kvæmdi fyr­ir danska dag­blaðið Berl­ingske og græn­lenska blaðið Sermitsiaq, og hið fyrr­nefnda greindi frá á vefsíðu sinni í gær­kvöldi, leiðir í ljós að 85 pró­sent Græn­lend­inga, sem eru 57.000 tals­ins, eru því mót­fall­in að sam­ein­ast Banda­ríkj­un­um, þvert á sann­fær­ingu Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta.

Skoðana­könn­un, sem sam­fé­lags­könnuður­inn Ver­i­an fram­kvæmdi fyr­ir danska dag­blaðið Berl­ingske og græn­lenska blaðið Sermitsiaq, og hið fyrr­nefnda greindi frá á vefsíðu sinni í gær­kvöldi, leiðir í ljós að 85 pró­sent Græn­lend­inga, sem eru 57.000 tals­ins, eru því mót­fall­in að sam­ein­ast Banda­ríkj­un­um, þvert á sann­fær­ingu Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta.

Hef­ur Trump verið mjög áhuga­sam­ur um það und­an­farið – og ít­rekað haft uppi yf­ir­lýs­ing­ar í þá átt – að sam­eina Græn­land Banda­ríkj­un­um og kveðst þess full­viss að Græn­lend­ing­ar séu all­ir af vilja gerðir til að verða banda­rískt ríki.

„Sér­fræðing­ar segja niður­stöðurn­ar [úr könn­un Ver­i­an] yf­ir­gnæf­andi og mjög skýr­ar,“ rit­ar Berl­ingske á vef sinn og klykk­ir út með orðunum: „En nú spyrna Græn­lend­ing­ar við fót­um í eitt skipti fyr­ir öll eft­ir margra vikna sjóðheita rök­ræðu.“

Frederik­sen ómyrk í máli

„Ég held að við mun­um fá það,“ höfðu fjöl­miðlar eft­ir Trump á laug­ar­dag­inn þar sem hann ræddi Græn­lands­málið um borð í flug­vél for­seta­embætt­is­ins, Air Force One, og dró hvergi úr.

Svo farið sé nán­ar ofan í niður­stöður Ver­i­an hafa heil sex pró­sent græn­lensku þjóðar­inn­ar áhuga á að ger­ast hand­geng­in Banda­ríkj­un­um á meðan níu pró­sent geta ekki gert upp hug sinn um málið. Eft­ir standa þá 85 pró­sent sem svara með þveru nei-i.

„Ég vil tryggja að Evr­ópa öll standi sam­an. Ekki aðeins hvað Dan­mörku snert­ir held­ur einnig í víðara sam­hengi,“ sagði danski for­sæt­is­ráðherr­ann Mette Frederik­sen í kjöl­far fund­ar henn­ar með Olaf Scholz Þýska­landskansl­ara í gær­morg­un og bætti því við að Evr­ópa yrði að standa fast á sín­um rétti.

Scholz sagði hins veg­ar að landa­mær­um yrði ekki hnikað með valdi, en sem kunn­ugt er hef­ur Trump neitað að úti­loka að hervaldi verði beitt til að taka Græn­land og leggja þessa stærstu eyju jarðar, rúm­lega 2,1 millj­ón fer­kíló­metra, und­ir banda­rískt rík­is­vald.

45 mín­útna sím­tal „gekk illa“

Innt eft­ir því hvort hún hygðist ræða við Trump á ný um þá land­vinn­inga sem hann legg­ur á ráðin um kvaðst Frederik­sen ekki mundu leggj­ast yfir daga­tal sitt til að setja slík­an fund á dag­skrá, en eins og banda­ríska dag­blaðið Fin­ancial Times greindi frá í síðustu viku áttu danski for­sæt­is­ráðherr­ann og Banda­ríkja­for­seti 45 mín­útna langt sím­tal um Græn­land vik­una þar á und­an og greindu heim­ild­ar­menn í kreðsum Trumps FT frá því að það hefði „gengið illa“.

„Sam­tal okk­ar við Banda­ríkja­menn fer fram eft­ir mis­mun­andi boðleiðum og á ólík­um stig­um,“ bætti Frederik­sen við fyrri yf­ir­lýs­ingu.

Leiðtog­ar Evr­ópu­sam­bands­ins koma sam­an á varn­ar­mála­fundi á mánu­dag­inn kem­ur þar sem fjár­mögn­un verður meðal ann­ars til umræðu auk nýrra mögu­leika á hernaðarsviðinu og telja kunn­ug­ir ekki örgrannt um að þar muni Græn­lands­draum­ar Banda­ríkja­for­seta krauma und­ir, en Trump hef­ur auk­in­held­ur ný­verið viðrað áhuga sinn á því að taka yfir Pana­maskurðinn og Kan­ada.

Berl­ingske (læst áskrift­ar­grein)

TV2

DR

Fin­ancial Times (sím­tal Frederik­sen og Trumps)

mbl.is