Lögreglan þyrfti sér kerfi fyrir ökklabönd

Fangelsismál | 29. janúar 2025

Lögreglan þyrfti sér kerfi fyrir ökklabönd

Birgir Jónasson, settur forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir rafrænt eftirlit vannýtt á Íslandi. Slíkt kerfi er þegar í notkun þegar kemur að fullnustu refsinga, en eins og komið hefur fram er ekkert slíkt kerfi í notkun hjá lögreglu þegar kemur að framfylgd og eftirliti með nálgunarbönnum.

Lögreglan þyrfti sér kerfi fyrir ökklabönd

Fangelsismál | 29. janúar 2025

Birgir Jónasson er settur forstjóri Fangelsismálastofnunar, en hann er í …
Birgir Jónasson er settur forstjóri Fangelsismálastofnunar, en hann er í leyfi frá störfum sem lögreglustjóri á Norðurlandi vestra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Birg­ir Jónas­son, sett­ur for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­un­ar, seg­ir ra­f­rænt eft­ir­lit vannýtt á Íslandi. Slíkt kerfi er þegar í notk­un þegar kem­ur að fulln­ustu refs­inga, en eins og komið hef­ur fram er ekk­ert slíkt kerfi í notk­un hjá lög­reglu þegar kem­ur að fram­fylgd og eft­ir­liti með nálg­un­ar­bönn­um.

Birg­ir Jónas­son, sett­ur for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­un­ar, seg­ir ra­f­rænt eft­ir­lit vannýtt á Íslandi. Slíkt kerfi er þegar í notk­un þegar kem­ur að fulln­ustu refs­inga, en eins og komið hef­ur fram er ekk­ert slíkt kerfi í notk­un hjá lög­reglu þegar kem­ur að fram­fylgd og eft­ir­liti með nálg­un­ar­bönn­um.

Birg­ir sér fyr­ir sér frek­ari tæki­færi í fulln­ustu­kerf­inu sem og fyr­ir lög­regl­una, en að þá þurfi kerf­in að vera sjálf­stæð frá hvor öðru.

Til­efnið er umræða um notk­un ökkla­banda hér á landi sem rík­is­sak­sókn­ari tel­ur afar mik­il­væga hvað varðar bæði nálg­un­ar­bann og úrræði í stað gæslu­v­arðhalds eða far­banns.

Fang­els­is­mála­stofn­un hef­ur notað ökkla­bönd sem fulln­ustu­úr­ræði í síðari hluta afplán­un­ar eft­ir að vist á áfanga­heim­il­inu Vernd lýk­ur. Vernd hef­ur ann­ast um­sýsl­una í kring­um ra­f­ræna eft­ir­litið en heim­ilt er sam­kvæmt ákvæðum laga um fulln­ustu refs­inga að gera sér­staka samniga um út­vist­un eins og þeir sem gerðir hafa verið við Vernd.

Hægt að fara ýms­ar leiðir

„Mér vit­an­lega hef­ur þetta ekki verið notað sem búnaður til að tryggja þving­un­ar­ráðstöf­un og það er ein­fald­lega af þeirri ástæðu að búnaður­inn er ekki til hjá lög­regl­unni og ekki er búið að fjár­festa í hon­um. Þá er enn sem komið er eng­in þekk­ing á búnaðinum.“

Er um sam­bæri­leg­an búnað að ræða og þau ökkla­bönd sem til staðar eru í dag?

„Lík­lega þyrfti kerfið að vera sjálf­stætt til að tryggja upp­lýs­inga­ör­yggi og ákveðna aðgrein­ingu. Aðgangs­stýr­ing­ar þyrftu að vera þannig úr garði gerðar að það væri á hreinu hver ætti kerfið og hver ræki það,“ seg­ir Birg­ir.

Seg­ir hann hægt að fara ýms­ar leiðir því laga­ákvæðið í 100. grein laga um meðferð saka­mála sé tölu­vert opið. „Við höf­um farið þessa leið að vera með ökkla­bönd sem eru ekki eign rík­is­ins held­ur leigð ann­ars staðar frá. Það er ekk­ert meitlað í stein í þeim efn­um og tölu­vert af fram­leiðend­um sem eru með þann búnað.“

Fangelsið á Hólmsheiði. Töluverð umræða hefur skapast um notkun ökklabanda …
Fang­elsið á Hólms­heiði. Tölu­verð umræða hef­ur skap­ast um notk­un ökkla­banda hér á landi í sam­bandi við nálg­un­ar­bönn og í stað gæslu­v­arðhalds eða far­banns. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Spurn­ing um pen­inga og umstang

Birg­ir seg­ir þetta vissu­lega hafa komið til tals en þetta kosti pen­inga og það sé tölu­verð um­sýsla í kring­um svona kerfi. 

„Það þarf að taka ákvörðun um að taka búnaðinn í notk­un, fjár­festa í hon­um og gera ráð fyr­ir því á fjár­lög­um,“ seg­ir hann og bæt­ir við að ra­f­rænt eft­ir­lit hafi reynst vel sem fulln­ustu­úr­ræði.

„Mér finnst ekki ólík­legt að í framtíðinni verði það notað í auknu mæli sem fulln­ustu­úr­ræði. Þetta geng­ur mun skem­ur en al­gjör frels­is­svipt­ing. Til framtíðar held ég að væri mjög gott að geta beitt þessu úrræði sam­hliða ein­hvers kon­ar meðferð eða eft­ir­fylgni. Ég held að það skili miklu meiru en að loka fólk ein­fald­lega inni en auðvitað velt­ur þetta á því hvers kon­ar dóma um ræðir og fyr­ir hvers kon­ar brot, lengd dóma o.s.frv.“

Gild­is­hlaðna orðið stofufang­elsi á við

Sett­ur for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­un­ar seg­ist al­mennt fylgj­andi því að not­ast í auknu mæli við ra­f­rænt eft­ir­lit, sér­stak­lega við ákveðnar kring­um­stæðar. 

Yrði þá um ein­hvers kon­ar stofufang­elsi eins og við þekkj­um frá lönd­un­um í kring­um okk­ur?

„Já, það má kannski nota það gild­is­hlaðna orð. Það má segja að þetta sé ákveðin teg­und af því,“ seg­ir Birg­ir. Tel­ur hann einnig mik­il­vægt að ökkla­bönd séu ekki bara sett á fólk og það svo látið lönd og leið. „Ég held að það sé mik­il­vægt að það verði ein­hver stefna eða meðferðaráætl­un.“

mbl.is