Kosningarnar standa

Alþingiskosningar 2024 | 3. febrúar 2025

Kosningarnar standa

„Nefndin var einróma um niðurstöðu sína um að kosningar stæðu og úthlutun þingsæta eftir að hafa farið mjög ítarlega yfir málið,“ segir Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kosninga.

Kosningarnar standa

Alþingiskosningar 2024 | 3. febrúar 2025

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, var formaður nefndarinnar.
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, var formaður nefndarinnar. mbl.is/Hákon

„Nefnd­in var ein­róma um niður­stöðu sína um að kosn­ing­ar stæðu og út­hlut­un þing­sæta eft­ir að hafa farið mjög ít­ar­lega yfir málið,“ seg­ir Dag­ur B. Eggerts­son, þingmaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og formaður und­ir­bún­ings­nefnd­ar fyr­ir rann­sókn kosn­inga.

„Nefnd­in var ein­róma um niður­stöðu sína um að kosn­ing­ar stæðu og út­hlut­un þing­sæta eft­ir að hafa farið mjög ít­ar­lega yfir málið,“ seg­ir Dag­ur B. Eggerts­son, þingmaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og formaður und­ir­bún­ings­nefnd­ar fyr­ir rann­sókn kosn­inga.

Nefnd­in var stofnuð eft­ir að um­sögn lands­kjör­stjórn­ar var skilað til Alþing­is en þar kom fram að nokkr­ir ann­mark­ar hefðu verið á fram­kvæmd kosn­ing­anna.

Í sam­tali við mbl.is seg­ir Dag­ur að nefnd­in hafi fundað stíft og farið vel yfir málið. Kallaðir voru til gest­ir og um­sagn­ir frá þeim sem að mál­inu komu og má finna gögn nefnd­ar­inn­ar á vef Alþing­is þar sem þau eru op­in­ber.

Ánægju­legt upp­haf

Þing verður sett á morg­un og seg­ir Dag­ur að vinn­an í nefnd­inni hafi verið ánægju­legt upp­haf á þing­ferli sín­um.

„Mér fannst þing­menn, sem komu nátt­úru­lega þarna úr öll­um flokk­um sem eiga sæti á þing­inu, nálg­ast þessi mál af mik­illi yf­ir­veg­un og mál­efna­lega. Það örlaði hvergi á því að það væru ein­hverj­ar póli­tísk­ar skot­graf­ir í þessu held­ur fyrst og fremst vand­virkni og ábyrgð sem mér fannst satt að segja ekk­ert sjálf­gefið,“ seg­ir þingmaður­inn og bæt­ir við:

„Ég var bara ánægður að kynn­ast því og von­andi veit það bara á gott varðandi and­ann í þing­inu al­mennt.“

mbl.is