Landris nálgast nú einn metra

Askja | 3. febrúar 2025

Landris nálgast nú einn metra

Lítil smáskjálftahrina mældist við Öskju snemma í gærmorgun. Skjálftarnir voru ekki stórir, eða á bilinu 0,2 til 1,6 að stærð.

Landris nálgast nú einn metra

Askja | 3. febrúar 2025

Horft til vesturs yfir Öskjuvatn og Víti. Landris mælist stöðugt …
Horft til vesturs yfir Öskjuvatn og Víti. Landris mælist stöðugt við eldstöðina og hefur gert síðan 2021. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lít­il smá­skjálfta­hrina mæld­ist við Öskju snemma í gær­morg­un. Skjálft­arn­ir voru ekki stór­ir, eða á bil­inu 0,2 til 1,6 að stærð.

Lít­il smá­skjálfta­hrina mæld­ist við Öskju snemma í gær­morg­un. Skjálft­arn­ir voru ekki stór­ir, eða á bil­inu 0,2 til 1,6 að stærð.

Bene­dikt Gunn­ar Ófeigs­son, fag­stjóri af­lög­un­ar­mæl­inga á Veður­stofu Íslands, seg­ir skjálfta­virkni í Öskju vera með minnsta móti, í raun minni en bú­ast hefði mátt við af eld­stöðinni í norðri. Alls hafa mælst 77 skjálft­ar við Öskju það sem af er ári, en á síðasta ári mæld­ust tæp­lega þúsund skjálft­ar við vatnið.

Á hefðbundn­um stað

Skjálfta­hrin­an smáa mæld­ist við suður­botna Öskju­vatns þar sem gjarn­an verða jarðskjálfta­hrin­ur.

„Ég get ímyndað mér að þetta teng­ist jarðhita­virkni. Það er viðvar­andi virkni á þess­um slóðum og svona hrin­ur verða,“ seg­ir Bene­dikt í sam­tali við Morg­un­blaðið.

„Það virðist, alla­vega eins og er, ekk­ert vera að breyt­ast í kring­um Öskju. Það er jarðhita­virkni þarna og það er alltaf skjálfta­virkni tengd henni. Svo eru ein­hverj­ir skjálft­ar á meira dýpi líka,“ seg­ir Bene­dikt.

Stöðugt landris mæl­ist í og við Öskju­vatn og nem­ur það nú um allt 15 senti­metr­um á einu ári. Í heild hef­ur land risið um 80 senti­metra frá 2021 og nálg­ast því óðfluga einn metra.

Land tók að rísa í Öskju í ág­úst 2021 og hef­ur það stöðugt risið síðan þá.

Kröft­ug en skamm­líf jarðskjálfta­hrina varð í Bárðarbungu snemma í janú­ar. Aðspurður hvort sú skjálfta­hrina hafi haft áhrif í og við Öskju seg­ir Bene­dikt svo ekki vera. Það sé sjald­an sem virkni við þá eld­stöð hafi áhrif í Öskju.

„Þetta var hrina sem við höfðum áhyggj­ur af að gerði eitt­hvað meira, en það varð ekki,“ seg­ir Bene­dikt að lok­um.

Kort/​mbl.is
mbl.is