Tíu látnir í Svíþjóð

Óöld í Svíþjóð | 4. febrúar 2025

Tíu látnir í Svíþjóð

Að minnsta kosti tíu eru látnir eftir skotárás í Ribergska-háskólanum í Örebro í Svíþjóð í dag. 

Tíu látnir í Svíþjóð

Óöld í Svíþjóð | 4. febrúar 2025

Viðbúnaður í Örebro var mikill.
Viðbúnaður í Örebro var mikill. AFP/Jonathan Nackstrand

Að minnsta kosti tíu eru látnir eftir skotárás í Ribergska-háskólanum í Örebro í Svíþjóð í dag. 

Að minnsta kosti tíu eru látnir eftir skotárás í Ribergska-háskólanum í Örebro í Svíþjóð í dag. 

Þetta sagði Roberto Eid, lögreglustjórinn í Örebro, á blaðamannafundi rétt í þessu.

Sagði Eid að lögreglan ynni nú að því að bera kennsl á hina látnu.

Árásarmaðurinn látinn

Lögreglan telur að aðeins einn maður hafi staðið að árásinni og er hann sagður núna látinn.

Lögreglan hefur ekki haft afskipti af manninum áður. 

Ekki er talin hætta á frekari árásum á þessari stundu að sögn lögreglu.

mbl.is