Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur tilkynnt að Rússar ætli sér að endurvekja Intervision, söngvakeppni sem naut vinsælda á tímum Sovétríkjanna.

Að sögn Pútíns hafa tuttugu lönd staðfest þátttöku sína í keppninni, þar á meðal eru Brasilía, Kúba, Indland, Kína og aðrar þjóðir sem eru vinveittar Rússum. Áætlað er að keppnin fari fram strax í haust.
Rússum hefur verið meinuð þátttaka í Eurovision frá innrásinni í Úkraínu. Ríkissjónvarpið í Rússlandi dró sig í kjölfarið út úr Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva.
Intervision-keppnin var fyrst sett á fót í tíð Leoníd Brezhnév, fyrrverandi aðalritara sovéska kommúnistaflokksins, og var hún haldin nokkuð reglulega fram að níunda áratug tuttugustu aldarinnar.
Þátttökuþjóðir voru að mestu leyti önnur kommúnistaríki en þó sendu Finnar nokkrum sinnum framlag í keppnina, og eru þeir eina þjóðin til að keppa í bæði Eurovision og Intervision.
Eftir fall Sovétríkjanna hófu Rússar að taka þátt í Eurovision árið 1994 en Rússar unnu keppnina í fyrsta og eina skiptið árið 2008. Pútín hefur gagnrýnt Eurovision í gegnum tíðina og sagt að keppnin sé andstæð hefðbundnum fjölskyldugildum.