Sjáðu Helgu Möggu gera súkkulaðibúðing

Uppskriftir | 6. febrúar 2025

Sjáðu Helgu Möggu gera súkkulaðibúðing

Helga Magga, áhrifavaldur með meiru, er ótrúlega sniðug að finna upp á réttum sem lauflétt er að útbúa og eru syndsamlega góðir. Á dögunum galdraði hún fram þennan súkkulaðibúðing sem gerður er úr kotasælu. Tær snilld hjá Helgu Möggu. Það geta allir leikið þessa list eftir og gert næringarríkan eftirrétt.

Sjáðu Helgu Möggu gera súkkulaðibúðing

Uppskriftir | 6. febrúar 2025

Helga Magga, heilsumarkþjálfi og áhrifavaldur, gerði næringarríkan og bragðgóðan súkkulaðibúðing …
Helga Magga, heilsumarkþjálfi og áhrifavaldur, gerði næringarríkan og bragðgóðan súkkulaðibúðing fyrir fylgjendur sína. Samsett mynd

Helga Magga, áhrifavaldur með meiru, er ótrúlega sniðug að finna upp á réttum sem lauflétt er að útbúa og eru syndsamlega góðir. Á dögunum galdraði hún fram þennan súkkulaðibúðing sem gerður er úr kotasælu. Tær snilld hjá Helgu Möggu. Það geta allir leikið þessa list eftir og gert næringarríkan eftirrétt.

Helga Magga, áhrifavaldur með meiru, er ótrúlega sniðug að finna upp á réttum sem lauflétt er að útbúa og eru syndsamlega góðir. Á dögunum galdraði hún fram þennan súkkulaðibúðing sem gerður er úr kotasælu. Tær snilld hjá Helgu Möggu. Það geta allir leikið þessa list eftir og gert næringarríkan eftirrétt.

Súkkulaðibúðingur

Fyrir 4

  • 400 g kotasæla
  • 4 msk. kakó
  • 1 msk. chiafræ
  • 3 msk. hunang
  • Smá vanilludropar

Til skrauts:

  • Hindber
  • flórsykur

Aðferð:

  1. Takið til fjögur glös á fæti.
  2. Setjið allt hráefnið saman í blandara eða matvinnsluvél og blandið vel saman.
  3. Skiptið blöndunni jafnt í glösin fjögur.
  4. Setjið í kæli í um það bil 30 mínútur.
  5. Skreytið með hindberjum og flórsykri ef vill.
mbl.is