Efling stéttarfélag hefur vísað kjaradeilu félagsins við Sorpu byggðasamlag til ríkissáttasemjara. Sérkjarasamningur sem í gildi var við fyrirtækið rann út 31. mars 2024.

Viðræður um nýjan kjarasamning hófust um miðjan nóvember, í samfloti með verkalýðsfélaginu Hlíf, að því er Efling greinir frá í tilkynningu.
„Við töldum okkur vera búin að ganga frá öllum málum og áttum jafnvel von á að samningurinn yrði undirritaður fyrir jól. Þá bárust hins vegar skilaboð frá Sorpu um að framkvæmdastjóri byggðasamlagsins, sem ekki hafði tekið þátt í samningafundum, neitaði að samþykkja niðurstöður viðræðnanna,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, í tilkynningunni.
Hún segir enn fremur að þetta hafi komið samninganefnd Eflingar og Hlífar mjög á óvart, það sé að því er hún telji einsdæmi að samninganefnd viðsemjenda reynist ekki hafa umboð til að ljúka samningagerð heldur sé það á valdi forstjóra einstakra fyrirtækja.
„Þegar við höfðum samband við aðila úr samninganefnd Sorpu og vildum halda áfram samtalinu til að ganga frá málinu, var okkur sagt að við gætum pantað fund hjá framkvæmdastjóranum. Ég hef ýmislegt heyrt og séð í viðræðum en að samninganefndum stéttarfélaga sé sagt að panta tíma hjá forstjóranum, það er algjört met. Því tók samninganefnd Eflingar ásamt Hlíf þá ákvörðun að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Þar verður fundur boðaður fljótlega. Ég vona bara að framkvæmdastjórinn mæti,“ er jafnframt haft eftir Sólveigu Önnu.