Sex vigtunarleyfishafar sættu sex vikna eftirliti á síðasta ári vegna frávika á íshlutfalli í fyrri löndunum áður en eftirlitsmenn Fiskistofu stóðu yfir endurvigtun, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Fiskistofu.

Til þessa sérstaka eftirlits kemur ef sjást veruleg frávik á íshlutfalli í afla skips miðað við meðaltalsíshlutfall skipsins í fyrri löndunum. Fiskistofa má halda úti þessu eftirliti með hlutaðeigandi vigtunarleyfishafa í allt að sex vikur.
Fram kemur að fjöldi vigtunarleyfishafa sé nokkuð stöðugur milli ára og varð engin breyting milli 2023 og 2024. Voru þannig í fyrra 79 endurvigtunarleyfishafar og 17 heimavigtunarleyfishafar.
Stofnunin hefur á vef sínum birt niðurstöður eftirlits með endurvigtun með tilliti til íshlutfalls hjá þeim vigtunarleyfishöfum sem sættu eftirliti á síðasta ári.