Borgarfulltrúar funda á ný um myndun meirihluta

Borgarfulltrúar fimm flokka munu hittast fljótlega eða eru þegar á fundi um myndun meirihluta í borgarstjórn. Þetta herma heimildir mbl.is.

Meirihlutinn í borginni sprengdur | 12. febrúar 2025

Borgarfulltrúar fimm flokka munu hittast fljótlega eða eru þegar á fundi um myndun meirihluta í borgarstjórn. Þetta herma heimildir mbl.is.

Borgarfulltrúar fimm flokka munu hittast fljótlega eða eru þegar á fundi um myndun meirihluta í borgarstjórn. Þetta herma heimildir mbl.is.

Flokkarnir sem um ræðir eru Flokkur fólksins, Píratar, Samfylking, Vinstri grænir og Sósíalistar. 

Borgarfulltrúarnir fóru yfir málin hver með sínu baklandi í gær áður en boðað var til nýs fundar í dag. Ekki liggur fyrir hvar fulltrúarnir munu hittast en að líkindum er það ekki í Ráðhúsi Reykjavíkur. 

Allir ráðsfundir hafa fallið niður en flokkarnir hafa sex daga til myndunar nýs meirihluta áður en  borgarstjórn kemur saman að nýju næsta þriðjudag. 

mbl.is