Smávægilegar tafir urðu á yfirferð rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar á norðvesturmiðunum í tengslum við yfirstandandi loðnuleiðangur vegna veikinda skipverja.

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti skipverjann að morgni þriðjudags og flutti hann til aðhlynningar í Reykjavík, en Árni Friðriksson hélt í kjölfarið til Ísafjarðar þar sem sóttur var nýr áhafnarmeðlimur sem kom í stað hins veika.
Árni er nú mættur aftur til mælinga norður af Vestfjörðum en Guðmundur J. Óskarsson, sviðstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, segir lítið að frétta.
„Þeir hafa verið að sjá einhverja loðnu á Árna en það er of snemmt að segja nokkuð um magnið eða dreifinguna. Það hefur ekkert verið að sjá hjá hinum tveimur sem eru austar.“
Polar Ammassak og Heimaey VE hafa leitað frá miðunum út af Langanesi og með Norðurlandi. Heimaey er nú norður af Eyjafirði en Polar Ammassak norður af Húsavík.
Hægt er að fylgjast með ferðum skipa á vegum Hafrannsóknastofnunar í beinni: