Svo virðist sem áralöng undirbúningsvinna Svandísar Svavarsdóttur í matvælaráðuneytinu undir merkjum „Auðlindarinnar okkar“ ætli að verða Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra fiskur í fjöru.

Í pistli í Morgunblaðinu í gær boðaði Hanna Katrín frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem nær til gagnsæis eigna- og stjórnunartengsla, hámarksaflahlutdeildar og tengdra aðila. Fjölmörg atriði sem í pistli hennar eru nefnd virðast tekin beint upp úr skýrslu Auðlindarinnar okkar, hugmyndir sem unnið var með í matvælaráðuneytinu frá árinu 2022, kynntar í skýrslu í ágúst 2023 og birtar í frumvarpsdrögum í samráðsgátt sama ár.
Fram kom í pistlinum að verði frumvarpið að lögum hefur það áhrif á útreikninga á aflamarkshlutdeild útgerða með yfir 20% eignarhald í öðrum útgerðarfélögum, m.t.t. lögbundinnar hámarkshlutdeildar. Vakti hún þó athygli á að viðbótarhámarksaflahlutdeild verði í boði fyrir útgerðir í dreifðu eignarhaldi, að uppfylltum skilyrðum.
Þetta er nokkuð sambærilegt við þær hugmyndir sem birtust í stefnumótunarvinnu sem fram fór undir merkjum Auðlindarinnar okkar. Þar var lagt til að útgerðarfélög sem skráð væru í kauphöll myndu fá heimild til að fara með 15% af heildaraflamarki í stað þeirra 12% sem almennt gildir.
Þegar þessar hugmyndir voru kynntar 2023 mættu þær mikilli andstöðu og var fullyrt að tillagan myndi að stuðla að aukinni samþjöppun eignarhalds aflahlutdeilda.
Hanna Katrín tekur einnig upp hugmyndir Auðlindarinnar okkar um tilkynningarskyldu viðskipta með aflahlutdeildir og segir frumvarpið gera ráð fyrir að slík viðskipti verði tilkynnt til Fiskistofu sem birtir þau opinberlega líkt og gert er í kauphöll.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.