Strætó hættir að taka við reiðufé

Strætó | 16. febrúar 2025

Baukarnir burt: Strætó hættir að taka við reiðufé

Strætó hættir að taka við reiðufé frá og með 1. júní 2025. Á sama tíma á að fjölga sölustöðum á strætómiðum til að tryggja aðgengi þeirra sem ekki nota snjallsíma.

Baukarnir burt: Strætó hættir að taka við reiðufé

Strætó | 16. febrúar 2025

Frá því í desember hefur verið hægt að borga ­með …
Frá því í desember hefur verið hægt að borga ­með greiðslukorti um borð í öll­um vögn­um Strætó á höfuðborg­ar­svæðinu. mbl.is/Hari

Strætó hættir að taka við reiðufé frá og með 1. júní 2025. Á sama tíma á að fjölga sölustöðum á strætómiðum til að tryggja aðgengi þeirra sem ekki nota snjallsíma.

Strætó hættir að taka við reiðufé frá og með 1. júní 2025. Á sama tíma á að fjölga sölustöðum á strætómiðum til að tryggja aðgengi þeirra sem ekki nota snjallsíma.

Þetta kemur fram í nýjustu fundargerð stjórnar Strætó undir liðnum „útfösun bauka“. Á stjórnarfundi byggðasamlagsins þann 31. janúar benti framkvæmdastjóri Strætó á að hlutfall reiðufjár af fargjaldatekjum hefði lækkað undanfarin ár​.

Frá því í desember hefur verið hægt að borga ­með greiðslukorti um borð í öll­um vögn­um Strætó á höfuðborg­ar­svæðinu.

Hægt að kaupa miða í sundlaugum

Í skjali sem fylgir fundargerðinni kemur fram að í febrúar verði komið upp sölu fargjalda í sundlaugum í Reykjavík, Kópavogi og Seltjarnarnesi​. Auk þess eigi að finna fleiri hugsanlega rekstraraðila til að efla net endursöluaðila á höfuðborgarsvæðinu. Þar er nefnt að einstaka verslanir og hótel selji fargjöld til gesta.

Samhliða útfösuninni hyggst Strætó fara í markaðsherferð til að vekja athygli á því að baukarnir séu á leiðinni burt.

Um áramótin hækkaði Strætó verð á stökum fargjöldum fyrir fullorðna úr 650 kr. í 670 kr. í takt við áætlaða hækk­un neyslu­verðsvísi­tölu. Í byrj­un árs hóf Strætó einnig að sekta þá farþega sem greiða ekki far­gjald í stræt­is­vagna.

Hlut­fall reiðufjár í um­ferð við verga lands­fram­leiðslu var 2,1% í árs­lok 2022 en 1,8% í lok 2023. Þá voru 9,3% af öllu pen­inga­magni í um­ferð í formi reiðufjár að virði tæp­lega 76 millj­arða króna og hafði lækkað um 5 millj­arða frá fyrra ári.

mbl.is