Hlutabréf bankanna hækka eftir samrunahugmyndir

Hlutabréf bankanna hækka eftir samrunahugmyndir

Hlutabréfaverð bæði Arion banka og Íslandsbanka hafa hækkað í fyrstu viðskiptum í morgun, en eftir lokun markaða á föstudaginn var bæði tilkynnt um áform ríkisstjórnarinnar að selja eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka, 42,5% hlutabréfa bankans, „á næstu misserum“ og að stjórn Arion banka hefði hug á að sameinast Íslandsbanka.

Hlutabréf bankanna hækka eftir samrunahugmyndir

Sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka | 17. febrúar 2025

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, og Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri …
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, og Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. Samsett mynd

Hluta­bréfa­verð bæði Ari­on banka og Íslands­banka hafa hækkað í fyrstu viðskipt­um í morg­un, en eft­ir lok­un markaða á föstu­dag­inn var bæði til­kynnt um áform rík­is­stjórn­ar­inn­ar að selja eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka, 42,5% hluta­bréfa bank­ans, „á næstu miss­er­um“ og að stjórn Ari­on banka hefði hug á að sam­ein­ast Íslands­banka.

Hluta­bréfa­verð bæði Ari­on banka og Íslands­banka hafa hækkað í fyrstu viðskipt­um í morg­un, en eft­ir lok­un markaða á föstu­dag­inn var bæði til­kynnt um áform rík­is­stjórn­ar­inn­ar að selja eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka, 42,5% hluta­bréfa bank­ans, „á næstu miss­er­um“ og að stjórn Ari­on banka hefði hug á að sam­ein­ast Íslands­banka.

Hluta­bréf Ari­on banka hafa hækkað um 1,75% í sam­tals 1,7 millj­arða viðskipt­um, en bréf Íslands­banka höfðu hækkað nokkuð meira, eða um 3,17% í 398 millj­ón króna viðskipt­um.

Kæmi Gylfa á óvart

Tals­verð umræða hef­ur orðið um sam­ein­inga­hug­mynd­irn­ar. Stjórn Ari­on banka tel­ur að á næstu tíu árum geti sam­legðaráhrif af samruna numið um 50 millj­örðum fyr­ir neyt­end­ur, en tekið er fram að bank­inn sé til­bú­inn að vinna náið með Sam­keppnis­eft­ir­lit­inu til að tryggja að þess­ir fimm millj­arðar ár­lega skili sér til neyt­enda.

Gylfi Magnús­son, fyrr­ver­andi fjár­málaráðherra og pró­fess­or í hag­fræði við Há­skóla Íslands, sagði um helg­ina að það kæmi sér mjög á óvart ef eft­ir­litið samþykkti samrun­ann.

Arna Lára Jóns­dótt­ir, formaður efna­hags- og viðskipta­nefnd­ar og þingmaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði að hún yrði pínu­lítið tor­trygg­in þegar rætt yrði um svona samruna og hverju hann eigi að skila og hefði efa­semd­ir um að ávinn­ing­ur­inn myndi rata í vasa neyt­enda.

Umræðan þarf að klár­ast

Nanna Mar­grét­ar Gunn­laugs­dótt­ir, þingmaður Miðflokks­ins og vara­formaður efna­hags- og viðskipta­nefnd­ar, sagði þá lík­legt að fresta þyrfti frum­varpi um söl­una á hlut rík­is­ins í bank­an­um vegna máls­ins.

„Við erum ekki fara selja bank­ann ef rétt reyn­ist að þetta skili veru­legri hagræðingu og þar af leiðandi kannski hærra verði fyr­ir bréf­in. Þessi umræða þarf að klár­ast áður en tek­in er ákvörðun um að hefja sölu­ferlið. Í öðru lagi blas­ir líka við að það er alls­kost­ar óvíst að Sam­keppn­is­eft­ir­litið heim­ili samrun­ann,“ sagði Nanna Mar­grét í sam­tali við mbl.is um helg­ina.

mbl.is