„Hef aðeins meira vit á sauðfjárbúskap“

Strandveiðar | 18. febrúar 2025

„Hef aðeins meira vit á sauðfjárbúskap“

„Mig langaði að fá að leggja orð í belg í þessari umræðu um strandveiðar, og ég geri það meira kannski af einhverju svona menningarlegum ástæðum heldur en mikilli þekkingu á fiskveiði eða fisktegundum eða nýtingu fiskstofna.“

„Hef aðeins meira vit á sauðfjárbúskap“

Strandveiðar | 18. febrúar 2025

Jón Gnarr tók til máls um strandveiðar í dag en …
Jón Gnarr tók til máls um strandveiðar í dag en viðurkenndi að hann hefði líklega meiri þekkingu á sauðfjárbúskap. Skjáskot

„Mig langaði að fá að leggja orð í belg í þess­ari umræðu um strand­veiðar, og ég geri það meira kannski af ein­hverju svona menn­ing­ar­leg­um ástæðum held­ur en mik­illi þekk­ingu á fisk­veiði eða fisk­teg­und­um eða nýt­ingu fisk­stofna.“

„Mig langaði að fá að leggja orð í belg í þess­ari umræðu um strand­veiðar, og ég geri það meira kannski af ein­hverju svona menn­ing­ar­leg­um ástæðum held­ur en mik­illi þekk­ingu á fisk­veiði eða fisk­teg­und­um eða nýt­ingu fisk­stofna.“

Þannig hófst ræða Jóns Gn­arrs þing­manns Viðreisn­ar á alþingi í dag í sér­stakri umræðu um strand­veiðar og tekj­ur hins op­in­bera af sjáv­ar­út­vegi.

Hélt Jón áfram: „Ég gæti ekki svarað því hvað er djúp­sjáv­ar­fisk­ur þó ég heyri þetta orð oft. Ég hef aðeins meira vit á sauðfjár­bú­skap. Veit til dæm­is hvað broddskita er og hef séð hana. “

„Varðandi strand­veiðar finnst mér svo mik­il­vægt, og það er mik­il­vægt, að við séum meðvituð um hvað strand­veiðar, hvað trillu­karl­inn — sem er full­orðinn vissu­lega, Árni Tryggva­son var landþekkt­ur trillu­karl — hvað trillu­karl­inn er mik­ill hluti af ís­lenskri þjóðmenn­ingu og íslensk­um raun­veru­leika. Það er kannski ekki mik­il hag­kvæmni af hon­um, en hann er samt mik­il­væg­ur.“

„Eins og bent hef­ur verið á í tengsl­um við sauðfjár­bú­skap að það get­ur verið mun hag­kvæm­ara að flytja inn lamba­kjöt frá Nýja Sjálandi í stað þess að rækta kind­ur hér á landi, en það er bara ekki aðal málið.“

mbl.is