Unnur Birna og Pétur selja eigulegt endaraðhús

Heimili | 18. febrúar 2025

Lögfræðingurinn Unnur Birna Vilhjálmsdóttir og Pétur Rúnar Heimisson markaðsstjóri Heima hafa sett einstaklega fallegt endaraðhús sitt í Garðabæ á sölu. Hjónin festu kaup á húsinu 2018 og hafa búið til fallega umgjörð utan um sig og fjölskyldu sína. 

Unnur Birna Vilhjálmsdóttir og Pétur Heimisson.
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir og Pétur Heimisson. mbl.is/Hákon Pálsson

Lögfræðingurinn Unnur Birna Vilhjálmsdóttir og Pétur Rúnar Heimisson markaðsstjóri Heima hafa sett einstaklega fallegt endaraðhús sitt í Garðabæ á sölu. Hjónin festu kaup á húsinu 2018 og hafa búið til fallega umgjörð utan um sig og fjölskyldu sína. 

Lögfræðingurinn Unnur Birna Vilhjálmsdóttir og Pétur Rúnar Heimisson markaðsstjóri Heima hafa sett einstaklega fallegt endaraðhús sitt í Garðabæ á sölu. Hjónin festu kaup á húsinu 2018 og hafa búið til fallega umgjörð utan um sig og fjölskyldu sína. 

Endaraðhúsið er 140 fm að stærð og var reist 1982. Það er á tveimur hæðum með rislofti og því nýtist plássið vel. Í húsinu eru fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi.

Eldhús og stofa renna saman í eitt og er útgengi út í garð úr rýminu. Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting með granítsteini og tanga. Gott skápapláss er í eldhúsinu og er rýmið bjart. 

Í garðinum er heitur pottur og stór afgirt verönd. 

Eldhúsið er opið inn í stofu og er þar að …
Eldhúsið er opið inn í stofu og er þar að finna hvíta sprautulakkaða innréttingu.
Stórir gluggar prýða stofuna.
Stórir gluggar prýða stofuna.

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Kjarrmóar 1

mbl.is