Íslendingar fá aðeins 54% loðnukvótans

Loðnuveiðar | 20. febrúar 2025

Íslendingar fá aðeins 54% loðnukvótans

Loðnukvóti íslenskra skipa þennan veturinn ætlar ekki að verða upp á marga fiska og verður aðeins 4.683 tonna loðnukvóta ráðstafað til þeirra, sem er rúm 54% af þeim 8.589 tonna hámarksafla sem Hafrannsóknastofnun hefur lagt til.

Íslendingar fá aðeins 54% loðnukvótans

Loðnuveiðar | 20. febrúar 2025

Loðnukvótinn verður ekki upp á marga fiska þennan veturinn.
Loðnukvótinn verður ekki upp á marga fiska þennan veturinn. mbl.is/Börkur Kjartansson

Loðnukvóti íslenskra skipa þennan veturinn ætlar ekki að verða upp á marga fiska og verður aðeins 4.683 tonna loðnukvóta ráðstafað til þeirra, sem er rúm 54% af þeim 8.589 tonna hámarksafla sem Hafrannsóknastofnun hefur lagt til.

Loðnukvóti íslenskra skipa þennan veturinn ætlar ekki að verða upp á marga fiska og verður aðeins 4.683 tonna loðnukvóta ráðstafað til þeirra, sem er rúm 54% af þeim 8.589 tonna hámarksafla sem Hafrannsóknastofnun hefur lagt til.

Þetta má lesa úr tilkynningu á vef Stjórnartíðinda.

Áður en kemur til úthlutunar verða 248 tonn dregin frá og falla í hlut ríkisins sem byggða- og atvinnukvóti, en þessar veiðiheimildir verða líklega í boði fyrir íslensk skip á skiptamarkaði.

Ætla má að þau 3.906 tonn sem útaf standa miðað við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar renni til erlendra skipa í samræmi við fiskveiðisamninga Íslands við Grænland, Færeyjar og Noreg.

mbl.is