Spennandi að vera í minnihluta

Dagmál | 21. febrúar 2025

Spennandi að vera í minnihluta

„Ég hugsa að við eigum alveg að geta verið frekar þéttur minnihluti og veitt þeim gott aðhald,“ segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, en þau Friðjón R. Friðjónsson eru gestir Dagmála í dag.

„Saman verður þessi minnihluti Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar miklu öflugri minnihluti og samstæðari minnihluti heldur en sá sem að var, vegna þess að við áttum sjaldnast samleið með einhverju sem sósíalistar voru að gera eða Vinstri græn,“ segir Friðjón.

Spennt Friðjón og Þórdís Lóa eru spennt fyrir minnihlutasamstarfinu.
Spennt Friðjón og Þórdís Lóa eru spennt fyrir minnihlutasamstarfinu.

Oft öfundað minnihlutann

Þórdís Lóa segist oft hafa öfundað minnihlutann af stöðu sinni. „Ég er mjög spennt. Ég verð bara stanslaust í fjölmiðlum, tjáandi mig um allt og alla. Ég sé þetta frelsi fyrir mér. Er þetta ekki þitt líf?“ spurði Þórdís Lóa Friðjón.

„Þetta er bara oflæti og offramboð,“ svaraði hann að bragði.

Brot úr þættinum, þar sem þau Þórdís Lóa og Friðjón ræða minnihlutasamstarfið fram undan, má sjá í myndbandsspilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is