Tilbúinn að stíga til hliðar gegn skilyrðum

Úkraínustríðið | 23. febrúar 2025

Tilbúinn að stíga til hliðar gegn skilyrðum

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti kveðst tilbúinn að stíga til hliðar sem forseti gegn því að Úkraína fái inngöngu í Atlantshafsbandalagið (NATO).

Tilbúinn að stíga til hliðar gegn skilyrðum

Úkraínustríðið | 23. febrúar 2025

Volodimír Selenskí var kallaður einræðisherra af Bandaríkjaforseta á dögunum.
Volodimír Selenskí var kallaður einræðisherra af Bandaríkjaforseta á dögunum. AFP

Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seti kveðst til­bú­inn að stíga til hliðar sem for­seti gegn því að Úkraína fái inn­göngu í Atlants­hafs­banda­lagið (NATO).

Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seti kveðst til­bú­inn að stíga til hliðar sem for­seti gegn því að Úkraína fái inn­göngu í Atlants­hafs­banda­lagið (NATO).

Breska dag­blaðið Tel­egraph grein­ir frá.

„Ef það verður friður í Úkraínu, ef þið þurfið endi­lega að fá mig til að hætta í mínu starfi, þá er ég til­bú­inn. Ég get gert það í skipt­um fyr­ir NATO,“ sagði Selenskí við blaðamenn fyrr í dag.

Kallaði Selenskí ein­ræðis­herra

Um­mæl­in koma í kjöl­far þess að Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti kallaði hann ein­ræðis­herra fyr­ir að halda ekki kosn­ing­ar á stríðstíma.

Selenskí kvaðst aðeins vera um­hugað um ör­yggi Úkraínu og að hann hefði ekki áhuga á því að verða for­seti í ára­tug, en hann tók við embætti árið 2019.

Selenskí hef­ur talað fyr­ir inn­göngu Úkraínu í NATO en rík­is­stjórn Don­alds Trumps hef­ur mót­mælt því.

Vill ekki kalla Pútín ein­ræðis­herra

At­hygli vakti á föstu­dags­kvöld þegar Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti vildi ekki svara því, spurður á blaðamanna­fundi í Hvíta hús­inu, hvort hann teldi að Vla­dimír Pútín, for­seti Rúss­lands, væri ein­ræðis­herra.

Degi áður hafði Trump full­yrt að Selenskí, sem kjör­inn var for­seti Úkraínu árið 2019, væri ein­ræðis­herra.

Pútín hef­ur stýrt landi sínu frá alda­mót­um og hef­ur ít­rekað komið í veg fyr­ir að lands­menn hafi raun­veru­legt val um leiðtoga þegar gengið er til kosn­inga.

Trump svaraði spurn­ing­unni ein­ung­is á þá leið að hann teldi að Pútín og Selenskí þyrftu að koma sam­an til fund­ar. „Við vilj­um hætta að drepa millj­ón­ir manna,“ sagði Trump. Tala lát­inna í inn­rás­ar­stríði Rússa er þó ekki tal­in hafa náð einni millj­ón, hvað þá millj­ón­um.

mbl.is