Samfélagsmiðlastjarna situr í gæsluvarðhaldi

Poppkúltúr | 24. febrúar 2025

Samfélagsmiðlastjarna situr í gæsluvarðhaldi

Franky Venegas, annar af tveimur liðsmönnum rappsveitarinnar Island Boys, var handtekinn í Flórída á sunnudag fyrir vopnalagabrot og vörslu á eiturlyfjum.  

Samfélagsmiðlastjarna situr í gæsluvarðhaldi

Poppkúltúr | 24. febrúar 2025

Franky Venegas.
Franky Venegas. Skjáskot/Instagram

Franky Venegas, annar af tveimur liðsmönnum rappsveitarinnar Island Boys, var handtekinn í Flórída á sunnudag fyrir vopnalagabrot og vörslu á eiturlyfjum.  

Franky Venegas, annar af tveimur liðsmönnum rappsveitarinnar Island Boys, var handtekinn í Flórída á sunnudag fyrir vopnalagabrot og vörslu á eiturlyfjum.  

Hann situr nú í gæsluvarðhaldi.  

Slúðurmiðillinn TMZ greindi fyrstur frá og birti fangamynd af samfélagsmiðlastjörnunni.  

Venegas, sem er 23 ára gamall, vakti heimsathygli þegar hann, ásamt tvíburabróður sínum, Alex Venegas, byrjaði að deila myndskeiðum á samfélagsmiðlasíðunni TikTok undir heitinu Island Boys. Bræðurnir gerðu allt vitlaust með lagi sínu, I’m an Island Boy, sem kom út árið 2021. 

Milljónir manna fylgjast með lífi bræðranna á samfélagsmiðlum.  

Venegas á sér langa afbrotasögu og hefur meðal annars verið handtekinn fyrir heimilisofbeldi, akstur án gildra ökuréttinda og glannaakstur.  

mbl.is