Bátar losnuðu í Sandgerðishöfn

Veður | 2. mars 2025

Bátar losnuðu í Sandgerðishöfn

Björgunarsveitin Sigurvon var kölluð út í Sandgerði í kvöld er bátar voru að losna, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar.

Bátar losnuðu í Sandgerðishöfn

Veður | 2. mars 2025

Óttast var að björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein hefði losnað frá …
Óttast var að björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein hefði losnað frá bryggju. Ljósmynd/Ríkarður Ríkarðsson

Björgunarsveitin Sigurvon var kölluð út í Sandgerði í kvöld er bátar voru að losna, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar.

Björgunarsveitin Sigurvon var kölluð út í Sandgerði í kvöld er bátar voru að losna, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar.

Óttast var að björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein hefði losnað, en svo var ekki raunin.

Björgunarsveitarfólk tryggði 2-3 smábáta sem voru að losna og sömuleiðis flotbryggju.

Verkefnunum að ljúka

Talsvert hefur gengið yfir varnargarðinn í höfninni og inn á bryggjuna þar fyrir innan, að sögn Jóns Þórs.

„Þessum verkefnum er að ljúka, það er búið að tryggja þessa báta sem voru að losna eða voru lausir,“ segir Jón Þór.

mbl.is