Hamas-samtökin segja ákvörðun Ísraela um að stöðva flutning hjálpargagna og birgða til Gasa vera „stríðsglæp“ og brot á samkomulagi um vopnahlé.

Í yfirlýsingu frá samtökunum er ákvörðun Benjamíns Netanjahús sögð vera “ódýr leið til kúgunar, stríðsglæpur og brot á vopnahléssamkomulagi“.
Tilkynnt var um það í morgun að allur flutningur á hjálpargögnum og birgðum til Gasa yrði stöðvaður þar til Hamas-samtökin samþykktu að framlengja fyrsta áfanga vopnahlésins.
Ísraelar hafa samþykkt tillögu Bandaríkjamanna um framlengingu á fyrsta áfanga vopnahlésins, en Hamas-samtökin segja að Ísraelar verði að samþykkja innleiðingu annars áfanga til að fleiri gíslum verði sleppt úr haldi.
Annar áfangi felur í sér algjört brotthvarf ísraelska hersins frá Gasa og að samið verði um varanlegt vopnahlé.
Fyrsta áfanga vopnahlésins átti að ljúka í gær.
Tillaga bandaríkjamanna felur í sér framlengingu á fyrsta áfanganum fram yfir ramadan, heilagan föstumánuð múslima, og páskahátíð gyðinga, og myndi því gilda til 20. apríl.