Ófært á mörgum fjallvegum á Vestfjörðum

Veður | 4. mars 2025

Ófært á mörgum fjallvegum á Vestfjörðum

Margir fjallvegir á Vestfjörðum eru lokaðir og til að mynda er ófært um Súðavíkurhlíð, Kleifaheiði og Klettháls og þá er vegurinn um Dynjandisheiði lokaður.

Ófært á mörgum fjallvegum á Vestfjörðum

Veður | 4. mars 2025

Súðavíkurhlíð er ófær.
Súðavíkurhlíð er ófær. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Margir fjallvegir á Vestfjörðum eru lokaðir og til að mynda er ófært um Súðavíkurhlíð, Kleifaheiði og Klettháls og þá er vegurinn um Dynjandisheiði lokaður.

Margir fjallvegir á Vestfjörðum eru lokaðir og til að mynda er ófært um Súðavíkurhlíð, Kleifaheiði og Klettháls og þá er vegurinn um Dynjandisheiði lokaður.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, en þar segir að vegurinn um Raknadalshlíð sé á óvissustigi vegna snjóflóðahættu.

Þungfært er um Öxnadalsheiði og víða er krapi, hálka eða snjóþekja á vegum á Norðurlandi.

Sunnan heiða er hálka og éljagangur á Hellisheiði, í Þrengslum, á Mosfellsheiði og Krýsuvíkurvegi.

Í athugasemdum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir búast megi við éljagangi á vestanverðu landinu í dag með lélegu skyggni og erfiðum aksturskilyrðum, einkum á fjallvegum.

mbl.is