Rólegt veður næstu daga

Veður | 5. mars 2025

Rólegt veður næstu daga

Þótt nokkrar lægðir séu á sveimi í kringum landið verður veðrið fremur rólegt næstu daga. Vindur verður hægur og stöku él á víð og dreif, en sólin lætur einnig sjá sig sig í flestum landshlutum.

Rólegt veður næstu daga

Veður | 5. mars 2025

Það ætti að viðra ágætlega til göngutúra næstu daga.
Það ætti að viðra ágætlega til göngutúra næstu daga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þótt nokkrar lægðir séu á sveimi í kringum landið verður veðrið fremur rólegt næstu daga. Vindur verður hægur og stöku él á víð og dreif, en sólin lætur einnig sjá sig sig í flestum landshlutum.

Þótt nokkrar lægðir séu á sveimi í kringum landið verður veðrið fremur rólegt næstu daga. Vindur verður hægur og stöku él á víð og dreif, en sólin lætur einnig sjá sig sig í flestum landshlutum.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands en í dag dregur úr vindi og um hádegi verður breytileg átt 3-8 m/s. Það verða stöku él á vestanverðu landinu, en bjart að mestu austanlands og styttir upp sunnanlands þegar líður á daginn. Hitinn verður 1- 5 stig en víða næturfrost.

Á morgun verður vestlæg eða breytileg átt og él eða slydduél, en þurrt að kalla á Austurlandi. Léttir til á suðvesturhorninu eftir hádegi. Hiti breytist lítið.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is