Engar skýringar hafa fengist á því af hverju Ísland fór aðra leið við innleiðingu samfélagsþjónustu í stað fangelsisvistar en allar nágrannaþjóðir okkar.
Engar skýringar hafa fengist á því af hverju Ísland fór aðra leið við innleiðingu samfélagsþjónustu í stað fangelsisvistar en allar nágrannaþjóðir okkar.
Engar skýringar hafa fengist á því af hverju Ísland fór aðra leið við innleiðingu samfélagsþjónustu í stað fangelsisvistar en allar nágrannaþjóðir okkar.
Þetta bendir Helgi I. Jónsson, fyrrverandi hæstaréttardómari á. Hann er nýjasti gestur Spursmála.
Þar fer hann yfir það hvernig íslensk yfirvöld hafa allt frá árinu 1995 falið fangelsismálayfirvöldum að opna á möglegar breytingar á refsingu fanga sem hlotið hafa óskilorðsbundna fangelsisdóma. Í fyrstu miðaðist heimild stofnunarinnar við að hún mætti breyta allt að þriggja mánaða fangelsi í samfélagsþjónustu. Síðar voru gerðar breytingar í nokkrum skrefum sem leiddu til þess að nú má snúa allt að 24 mánaða óskilorðsbundnu fangelsi yfir í samfélagsþjónstu sem getur numið allt að 960 vinnustundum.
Eins og fram hefur komið gagnrýnir Helgi harðlega að fulltrúum framkvæmdavaldsins sé falið að gera dóma dómskerfisins að engu og breyta þeim í allt annars konar refsingu en þá sem ákvörðuð hefur verið á þeirra vettvangi.
Segir hann að þar sé gengið í skýrt berhögg við 2. grein stjórnarskrár lýðveldisins sem kveður á um aðskilnað dóms-, framkvæmda- og löggjafarvalds.
Boðuð hefur verið allsherjar endurskoðun á þessum þætti refsivörslukerfisins sem ætlað er að ljúka árið 2027. Segir Helgi hins vegar brýnt að ráðast nú þegar í breytingar á kerfinu til þess að koma í veg fyrir brot á stjórnarskránni.
Morgunblaðið hefur leitað svara hjá dómsmálaráðuneytinu varðandi stöðu þessara mála og hefur fengið þær upplýsingar frá aðstoðarmanni ráðherra að unnið sé að því að taka þær upplýsingar saman.
Helgi ritaði grein um þetta mál í afmælisrit Markúsar Sigurbjörnssonar, fyrrverandi forseta Hæstaréttar Íslands í tilefni sjötugsafmælis hans. Bókin kom út hjá bókafélaginu Fons Juris.
Viðtalið við Helga má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan: