Jódís Skúladóttir seldi raðhúsið á uppsettu verði

Heimili | 6. mars 2025

Jó­dís Skúla­dótt­ir, þingmaður Vinstri grænna í Norðaust­ur­kjör­dæmi, hætti á Alþingi í haust eftir að hafa verið hafnað af flokknum. Í kjölfarið þurrkaðist flokkurinn nánast út en hreyfingin náði ekki inn neinum þingmanni í síðustu kosningum.

Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, seldi húsið á uppsettu …
Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, seldi húsið á uppsettu verði. Samsett mynd

Jó­dís Skúla­dótt­ir, þingmaður Vinstri grænna í Norðaust­ur­kjör­dæmi, hætti á Alþingi í haust eftir að hafa verið hafnað af flokknum. Í kjölfarið þurrkaðist flokkurinn nánast út en hreyfingin náði ekki inn neinum þingmanni í síðustu kosningum.

Jó­dís Skúla­dótt­ir, þingmaður Vinstri grænna í Norðaust­ur­kjör­dæmi, hætti á Alþingi í haust eftir að hafa verið hafnað af flokknum. Í kjölfarið þurrkaðist flokkurinn nánast út en hreyfingin náði ekki inn neinum þingmanni í síðustu kosningum.

Stuttu síðar, eftir að ljóst var að ekki væri stemning fyrir störfum hennar í þágu Vinstri grænna, setti hún raðhús sitt við Skeiðarvog í Reykjavík á sölu. Um er að ræða 163 fm raðhús sem reist var 1955. Í kjall­ara húss­ins er auka­í­búð sem auðvelt er að leigja út.

Húsið er fjöl­skyldu­vænt, með garði og nokkuð snyrti­leg­um inn­rétt­ing­um. Það er staðsett miðsvæðis í Reykja­vík, stutt er út á stofn­braut­ir og í Skeif­una.

Nú hefur húsið verið selt. 

Kaupendur hússins eru Gunnar Páll Ólafsson og Kristbjörg Gunnarsdóttir. Þau greiddu 111.900.000 kr. fyrir húsið eða uppsett verð! 

mbl.is