Khloé Kardashian vill leiðrétta misskilning dóttur sinnar

Kardashian | 6. mars 2025

Khloé Kardashian vill leiðrétta misskilning dóttur sinnar

True Thompson, sex ára dóttir Khloé Kardashian og Tristan Thompson, heldur að foreldrar sínir séu saman, líkt og móðir hennar sagði vinkonu sinni, Maliku Haqq, í nýjasta Kardashian-þættinum.

Khloé Kardashian vill leiðrétta misskilning dóttur sinnar

Kardashian | 6. mars 2025

Khloé Kardashian og NBA-körfuboltaleikmaðurinn Tristan Thompson eiga tvö börn saman, …
Khloé Kardashian og NBA-körfuboltaleikmaðurinn Tristan Thompson eiga tvö börn saman, True, sem er sex ára, og Tatum, tveggja ára. Samsett mynd/Instagram

True Thomp­son, sex ára dótt­ir Khloé Kar­dashi­an og Trist­an Thomp­son, held­ur að for­eldr­ar sín­ir séu sam­an, líkt og móðir henn­ar sagði vin­konu sinni, Maliku Haqq, í nýj­asta Kar­dashi­an-þætt­in­um.

True Thomp­son, sex ára dótt­ir Khloé Kar­dashi­an og Trist­an Thomp­son, held­ur að for­eldr­ar sín­ir séu sam­an, líkt og móðir henn­ar sagði vin­konu sinni, Maliku Haqq, í nýj­asta Kar­dashi­an-þætt­in­um.

„True held­ur að við Trist­an séum gift,“ sagði hún. „En það er rétt að gera, að mínu áliti, að gifta sig og eign­ast börn. Það er það sem mig lang­ar að kenna henni.“

Hins veg­ar seg­ist Khloé til­bú­in til að út­skýra hið rétta fyr­ir dótt­ur sinni þegar sá tími kem­ur.

„Það eina sem trufl­ar mig myndi vera, að ég vildi ekki að True færi í gegn­um lífið og hugsaði að svona sé hjóna­band,“ játaði Khloé fyr­ir vin­konu sinni.

„Það er, að ganga í hjóna­band en að búa ekki sam­an. Og þið kyss­ist aldrei og sofið ekki einu sinni í sama rúmi. Ég óska þess að börn­in mín sjái mig eign­ast mann á ein­hverj­um tíma­punkti og sjái þannig hvað kær­leik­ur og róm­an­tík er. Ég vil að þau fái það.“

Khloé og Trist­an skildu árið 2021 eft­ir að hafa verið sund­ur og sam­an um ára­bil og nýt­ur Khloé þess að vera á lausu. Sögu­sagn­ir um að hún og Trist­an væru að taka aft­ur sam­an fóru á flug þegar hún m.a. sást á NBA-leik með börn­un­um sín­um, þar sem Trist­an var að spila. Það kem­ur þó skýrt fram í þætt­in­um að Khloé sé ekki að fara að taka upp þráðinn með hon­um að nýju.

E News

mbl.is