Kristrún: Góð samskipti við Bandaríkin skipta sköpum

Varnarmál Íslands | 6. mars 2025

Kristrún: Góð samskipti við Bandaríkin skipta sköpum

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir góð samskipti við Bandaríkjamenn skipta sköpum. Ríkisstjórnin sé meðvituð um mikilvægi þess að lenda ekki á milli í tollastríði Bandaríkjanna og Evrópu.

Kristrún: Góð samskipti við Bandaríkin skipta sköpum

Varnarmál Íslands | 6. mars 2025

„Við munum líka standa föst á því gagnvart Bandaríkjunum að …
„Við munum líka standa föst á því gagnvart Bandaríkjunum að sérstakir tollar frá ESB nái ekki til Íslands, enda eigum við ofboðslega mikið undir að viðskipti við Bandaríkin séu sem greiðust,“ segir Kristrún. Samsett mynd

Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra seg­ir góð sam­skipti við Banda­ríkja­menn skipta sköp­um. Rík­is­stjórn­in sé meðvituð um mik­il­vægi þess að lenda ekki á milli í tolla­stríði Banda­ríkj­anna og Evr­ópu.

Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra seg­ir góð sam­skipti við Banda­ríkja­menn skipta sköp­um. Rík­is­stjórn­in sé meðvituð um mik­il­vægi þess að lenda ekki á milli í tolla­stríði Banda­ríkj­anna og Evr­ópu.

Hún seg­ir ís­lensk stjórn­völd munu standa föst á því gagn­vart Washingt­on að sér­stak­ir toll­ar Evr­ópu­sam­bands­ins nái ekki til Íslands.

Þá séu bæði hún og ut­an­rík­is­ráðherra búin að leggja áherslu á það, í sam­skipt­um við leiðtoga annarra Evr­ópu­ríkja, að aðgerðir í tolla­stríðinu bitni ekki á hags­mun­um Íslands.

Þetta kom fram í máli Kristrún­ar á iðnþingi Sam­taka iðnaðar­ins.

Blik­ur á lofti

„Það eru auðvitað ákveðnar blik­ur á lofti sem við verðum að horf­ast í augu við. Og ég er al­veg eins og þið meðvituð um þær svipt­ing­ar sem hafa orðið á alþjóðasviðinu síðustu miss­eri. Við í rík­is­stjórn­inni ger­um okk­ur fulla grein fyr­ir mik­il­vægi þess að klemm­ast ekki á milli í tolla­stríði á milli Banda­ríkj­anna og Evr­ópu,“ seg­ir Kristrún og held­ur áfram:

„Við vit­um að þetta er risa­stórt hags­muna­mál fyr­ir at­vinnu­lífið. Óviss­an er óþægi­leg. En það sem skipt­ir máli núna er að vera í virk­um sam­skipt­um við leiðtoga Evr­ópu­ríkja – og þessi sam­skipti hafa sjald­an eða aldrei verið þétt­ari, og þá skipt­ir líka sköp­um að halda áfram góðum sam­skipt­um við Banda­rík­in.“

Evr­ópa megi ekki skaða hags­muni Íslands

Kristrún seg­ist hafa farið víða í um­róti síðustu vikna hið sama eigi við um Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dótt­ur ut­an­rík­is­ráðherra. Nefn­ir hún fundi í Munchen og Ósló.

„Og ég get greint frá því hérna, að á hverj­um ein­asta fundi með full­trúa Evr­ópu­sam­bands­ríkja hef ég gætt hags­muna Íslands sem EES og EFTA-rík­is gagn­vart mögu­leg­um aðgerðum í tolla­mál­um,“ seg­ir Kristrún.

„Þar hef­ur komið fram á öll­um þess­um fund­um rík­ur skiln­ing­ur á að Evr­ópa megi ekki und­ir nokkr­um kring­um­stæðum skaða viðskipta­hags­muni Íslands með aðgerðum sem ætlað er að bregðast við tolla­hækk­un­um annarra ríkja og þessi skila­boð hafa verið skýr.“

Hún seg­ir ut­an­rík­is­ráðherra jafn­framt hafa haldið þess­um sjón­ar­miðum til haga.

„Við mun­um líka standa föst á því gagn­vart Banda­ríkj­un­um að sér­stak­ir toll­ar frá ESB nái ekki til Íslands, enda eig­um við ofboðslega mikið und­ir að viðskipti við Banda­rík­in séu sem greiðust.“

mbl.is