„Alvarlegt að stjórnvöld veiti villandi upplýsingar“

„Alvarlegt að stjórnvöld veiti villandi upplýsingar“

Dæmi eru um að 12 ára börn hafi verið vistuð í fangaklefum á lögreglustöðinni í Flatahrauni í Hafnarfirði og að börn hafi verið vistuð þar allt að sex daga í einu. Þetta kemur fram í svari Barna- og fjölskyldustofu við fyrirspurn umboðsmanns barna.

„Alvarlegt að stjórnvöld veiti villandi upplýsingar“

Neyðarástand í málefnum barna | 7. mars 2025

Salvör Nordal. umboðsmaður barna, hefur ítrekað lýst þungum áhyggjum af …
Salvör Nordal. umboðsmaður barna, hefur ítrekað lýst þungum áhyggjum af neyðarástandi innan meðferðarkerfisins. Samsett mynd

Dæmi eru um að 12 ára börn hafi verið vistuð í fangaklefum á lögreglustöðinni í Flatahrauni í Hafnarfirði og að börn hafi verið vistuð þar allt að sex daga í einu. Þetta kemur fram í svari Barna- og fjölskyldustofu við fyrirspurn umboðsmanns barna.

Dæmi eru um að 12 ára börn hafi verið vistuð í fangaklefum á lögreglustöðinni í Flatahrauni í Hafnarfirði og að börn hafi verið vistuð þar allt að sex daga í einu. Þetta kemur fram í svari Barna- og fjölskyldustofu við fyrirspurn umboðsmanns barna.

Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, hafði áður fullyrt bæði við umboðsmann og mbl.is að hámarksvistunartími í neyðarvistun í Flatahrauni væru tveir sólarhringar og að notkun þess takmarkaðist við þyngstu tilfellin.

Samkvæmt starfsleyfi vegna reksturs úrræðisins er þess hins vegar getið að hámarksvistunartími í Flatahrauni séu sjö sólarhringar.

Bæði forstjóri Barna- og fjölskyldustofu og ráðherra hafa tekið undir með umboðsmanni barna að úrræðið í Flatahrauni sé óboðlegt börnum.

Vistun verið börnum mikið áfall

Umboðsmaður barna hefur sent mennta- og barnamálaráðherra bréf þar sem þess er krafist að ráðuneytið upplýsi embættið tafarlaust um hvaða ráðstafana verði gripið svo að loka megi neyðarvistun í Flatahrauni. Þá eru gerðar athugasemdir við framkvæmdina og það að stjórnvöld hafi veitt villandi upplýsingar.

Fram kemur í bréfinu að það hafi ítrekað komið fram, bæði opinberlega og samskiptum umboðsmanns við ráðuneytið og Barna- og fjölskyldustofu, að börn hafi ekki dvalið í Flatahrauni lengur en tvo sólarhringa í senn. 

Umboðsmanni bárust hins vegar erindi frá foreldrum þar sem fram kom að börn þeirra hefðu verið vistuð þar mun lengur, eða allt að viku.

„Einnig hefur komið fram að í einhverjum tilfellum hafi ástand barnanna ekki verið með þeim hætti að notkun úrræðisins hafi verið nauðsynleg. Þá séu dæmi um að vistun á Flatahrauni hafi verið börnunum mikið áfall,“ segir meðal annars í bréfi umboðsmanns. 

Fékk ekki svör fyrr en fyrirspurn var ítrekuð

Í kjölfarið óskaði  umboðsmaður eftir upplýsingum um fjölda vistana og tímalengd hverrar vistunar frá Barna- og fjölskyldustofu. Svörin bárust ekki fyrr en fyrirspurnin hafði verið ítrekuð. 

Í ljós kom að frá því að úrræðið var tekið í notkun í lok október á síðasta ári, hafa börn verið vistuð í Flatahrauni í 41 skipti og að vistun hafi varað í allt að sex daga í senn. Þá hafi börn niður í 12 ára verið vistuð í úrræðinu.

„Í ljósi framangreindra upplýsinga getur umboðsmaður ekki annað en gert alvarlegar athugasemdir við þessa framkvæmd. Benda framangreindar upplýsingar til þess að frá upphafi hafi verið gert ráð fyrir að hámarksvistunartími í úrræðinu væru sjö sólarhringar en ekki tveir sólarhringar eins og og komið hefur ítrekað fram hjá Barna- og fjölskyldustofu og í svörum mennta- og barnamálaráðuneytisins, enda staðfesta opinber gögn að börn hafi í reynd vistast þar í allt að sex sólarhringa,“ segir einnig í bréfinu.

„Þykir umboðsmanni barna alvarlegt að stjórnvöld veiti villandi upplýsingar um svo mikilvæg efni sem varða grundvallarmannréttindi barna í afar viðkvæmri stöðu.“

Ítrekað lýst þungum áhyggjum

Bent er á að það hafi verið yfirlýst stefna að börn séu ekki vistuð í fangaklefum, óháð ástæðum frelsissviptingar.

„Að mati umboðsmanns er því mjög alvarlegt að Barna- og fjölskyldustofa skuli nú reka úrræði fyrir börn í fangageymslum þar sem ekki er til staðar viðunandi meðferðarheimili fyrir börn í þessari stöðu.“

Umboðsmaður barna hefur ítrekað lýst þungum áhyggjum af því neyðarástandi sem skapast hefur innan meðferðarkerfisins og þeim aðkallandi vanda og úrræðaleysi sem þar ríkir, líkt og ítarlega hefur verið fjallað um á mbl.is.

Greint var frá því á mbl.is á sunnudag að verið værið að hraða endurbyggingu tveggja herbergja á Stuðlum sem nýta á undir neyðarvistun. Sagði Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra í samtali við mbl.is að gert væri ráð fyrir að herbergin yrðu tekin í notkun eftir fjórar vikur og að þá yrði hægt að loka úrræðinu í Flatahrauni.

mbl.is