Matarhátíðin Reykjavík Food & Fun verður haldin dagana 12.-16. mars 2025, í 22. skiptið. Hátíðin hefur öðlast fastan sess í menningarlífi borgarinnar og er löngu orðin einn af hápunktum ársins fyrir matgæðinga.

Markmið Food & Fun er að sameina einstakt íslenskt hráefni og alþjóðlega matargerðarlist, þar sem erlendir gestakokkar fá tækifæri til að nýta ferskar og einstakar afurðir Íslands í nýstárlegum réttum. Hátíðin hefur vakið mikla athygli á heimsvísu og hefur reynst frábær kynning á íslenskri matargerð.
Órjúfanlegur hluti af matar- og menningarupplifun Reykjavíkur
„Food & Fun er orðin órjúfanlegur hluti af matar- og menningarupplifun Reykjavíkur og dregur að sér fólk sem elskar góðan mat og frábæra stemningu. Það er alltaf einstök orka á veitingastöðum borgarinnar á hátíðinni og við erum heppin að hafa fengið til okkar framúrskarandi matreiðslumeistara frá öllum heimshornum í gegnum tíðina. Við hlökkum til að kynna gestakokkana til leiks fljótlega,“ segir Óli Hall framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
Alls taka 17 veitingastaðir þátt í ár og hér má listann yfir þá:
Erlendir gestakokkar hafa í gegnum tíðina verið sérstaklega hrifnir af íslensku hráefni, sem hefur jafnframt orðið að aðalsmerki Food & Fun hátíðarinnar. Mörg dæmi eru um að íslenskar afurðir hafi ratað á matseðla víða um heim í kjölfar þess að gestakokkar kynntust þeim á hátíðinni.
„Það er sérstakt að fylgjast með áhuga erlendra matreiðslumanna á íslensku hráefni, hvort sem það er íslenskt lamb, ferskur fiskur eða jafnvel íslenska smjörið sem oft stelur senunni. Matgæðingar víða um heim hafa kynnst einstökum brögðum Íslands og sjálfbærni í matvælaframleiðslu í gegnum þessa hátíð,“ segir Óli enn fremur.
Matarmenning er orðin stór þáttur í aðdráttarafli Íslands fyrir erlenda gesti, og hátíð eins og Food & Fun hefur hjálpað til við að koma Íslandi á kortið sem spennandi áfangastað fyrir sælkera. „Við hlökkum til að bjóða gestum og þátttakendum á Food & Fun 2025 til að upplifa einstaka matarveislu og kynnast ríkulegri flóru íslenskrar matargerðar í góðum félagsskap,“ segir Óli Hall sem er kominn á fullt í undirbúninginn fyrir dýrðina á næstu dögum.
Gestakokkarnir í ár verða kynntir til leiks hér á matarvefnum um helgina.