Hagsæld sem grundvallast á rannsóknum

Endurnýjun skipaflotans | 9. mars 2025

Hagsæld sem grundvallast á rannsóknum

Þess verður örugg­lega ekki langt að bíða að Þórunn Þórðardóttir HF 300, nýjasta viðbótin við íslenska flotann, sanni gildi sitt og hjálpi vísindamönnum Hafrannsókna­stofnunar að dýpka skilning sinn á bæði smæstu og stærstu lífverunum sem finna má innan 200 mílna lögsögunnar, segir í sérstöku blaði helgað komu nýsmíðaðs hafrannsóknaskips til landsins sem fylgdi helgarblaði Morgunblaðsins.

Hagsæld sem grundvallast á rannsóknum

Endurnýjun skipaflotans | 9. mars 2025

Þórunn Þórðardóttir er stórglæsileg.
Þórunn Þórðardóttir er stórglæsileg. Ljósmynd/Armon

Þess verður örugg­lega ekki langt að bíða að Þórunn Þórðardóttir HF 300, nýjasta viðbótin við íslenska flotann, sanni gildi sitt og hjálpi vísindamönnum Hafrannsókna­stofnunar að dýpka skilning sinn á bæði smæstu og stærstu lífverunum sem finna má innan 200 mílna lögsögunnar, segir í sérstöku blaði helgað komu nýsmíðaðs hafrannsóknaskips til landsins sem fylgdi helgarblaði Morgunblaðsins.

Þess verður örugg­lega ekki langt að bíða að Þórunn Þórðardóttir HF 300, nýjasta viðbótin við íslenska flotann, sanni gildi sitt og hjálpi vísindamönnum Hafrannsókna­stofnunar að dýpka skilning sinn á bæði smæstu og stærstu lífverunum sem finna má innan 200 mílna lögsögunnar, segir í sérstöku blaði helgað komu nýsmíðaðs hafrannsóknaskips til landsins sem fylgdi helgarblaði Morgunblaðsins.

Skipið, sem er búið nýjustu og fullkomnustu mælitækjum og myndavélum, getur m.a. siglt nærri því hljóðlaust á rafmagninu einu saman, þökk sé öflugri rafhlöðu. Öll hönnun skipsins miðar að því að hámarka skilvirkni og draga úr olíunotkun.

Rannsóknarstarfið heldur áfram, og sífellt bætist í þekkingarforðann. Með hverjum túrnum eykst skilningur Íslendinga á því hvernig skynsam­legast er að nýta auðlindirnar í hafinu, og eftir því sem vísindin eflast er hægt að áætla af meiri vissu hve mikið – eða hve lítið – er rétt að veiða úr hverjum stofni hverju sinni.

Á þessu grundvallast verðmætasköpun: að vita meira og meira. Og kannski má vona að með svona fullkomnu nýju hafrannsóknaskipi verði erfitt fyrir loðnuna að fela sig.

Blaðið um Þórunni Þórðardóttur HF má lesa hér.

mbl.is