„Ég tek undir það heilshugar“

Loðnuveiðar | 11. mars 2025

„Ég tek undir það heilshugar“

„Ég tek undir það heilshugar. Allir félagsmenn mínir sem komið hafa nálægt nótaveiði hafa horft upp á fjölgun á hnúfubak ár frá ári,“ segir Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, í Morgunblaðinu í dag, en álits hans var leitað á áformum þingmanna um að leggja fram þingsályktunartillögu á Alþingi þess efnis að farið verði í að rannsaka afrán hnúfubaks á Íslandsmiðum.

„Ég tek undir það heilshugar“

Loðnuveiðar | 11. mars 2025

Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, tekur undir hugmyndir um þörf …
Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, tekur undir hugmyndir um þörf á að rannsaka afrán hnúfubaka. mbl.is/Eyþór Árnason

„Ég tek undir það heilshugar. Allir félagsmenn mínir sem komið hafa nálægt nótaveiði hafa horft upp á fjölgun á hnúfubak ár frá ári,“ segir Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, í Morgunblaðinu í dag, en álits hans var leitað á áformum þingmanna um að leggja fram þingsályktunartillögu á Alþingi þess efnis að farið verði í að rannsaka afrán hnúfubaks á Íslandsmiðum.

„Ég tek undir það heilshugar. Allir félagsmenn mínir sem komið hafa nálægt nótaveiði hafa horft upp á fjölgun á hnúfubak ár frá ári,“ segir Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, í Morgunblaðinu í dag, en álits hans var leitað á áformum þingmanna um að leggja fram þingsályktunartillögu á Alþingi þess efnis að farið verði í að rannsaka afrán hnúfubaks á Íslandsmiðum.

Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær telja þingmennirnir Vilhjálmur Árnason og Jens Garðar Helgason brýnt að rannsaka áhrif stækkandi stofns hnúfubaks á afkomu nytjastofna, einkum loðnustofninn, og koma þar vísindaveiðar til álita.

Árni segir að hnúfubakur sé farinn að hafa vetursetu við landið sem sé breyting frá því sem áður var.

„Nú er hnúfubakurinn inni á fjörðum og flóum allt árið. Hvalaskoðunarbátarnir í Reykjavík fara inn í Sundahöfn af öllum stöðum til að sýna hvali. Og á Eyjafirði sjást hvalir nær undantekningarlaust í hvalaskoðunarferðum. Reyndir nótaskipstjórar segja mér að það séu sömu 20 dýrin sem halda sig inni á Eyjafirði allan veturinn,“ segir Árni.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is