Ólíklegt að frumvarp fáist afgreitt

Strandveiðar | 11. mars 2025

Ólíklegt að frumvarp fáist afgreitt

Frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða til að tryggja strandveiðibátum 48 óskerta veiðidaga mun líklega ekki fást afgreitt nógu snemma til að lagabreyting gildi um veiðar sumarsins eins og stefnt var að. Þetta segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Ólíklegt að frumvarp fáist afgreitt

Strandveiðar | 11. mars 2025

Hanna Katrín Friðriks­son atvinnu­vega­ráðherra kvaðst stefna að því að tryggja …
Hanna Katrín Friðriks­son atvinnu­vega­ráðherra kvaðst stefna að því að tryggja strandveiðibátum 48 veiðidaga í gegnum reglugerð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða til að tryggja strandveiðibátum 48 óskerta veiðidaga mun líklega ekki fást afgreitt nógu snemma til að lagabreyting gildi um veiðar sumarsins eins og stefnt var að. Þetta segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða til að tryggja strandveiðibátum 48 óskerta veiðidaga mun líklega ekki fást afgreitt nógu snemma til að lagabreyting gildi um veiðar sumarsins eins og stefnt var að. Þetta segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Hanna Katrín kvaðst hins vegar hafa á ríkisstjórnarfundi í dag kynnt breytingar á strandveiðikerfinu vegna komandi sumars í gegnum reglugerð með markmið um að tryggja öllum bátum 48 veiðidaga. Hún boðaði í samtali við Ríkisútvarpið að hafið yrði samráðsferli í dag í tengslum við reglugerðina en reglugerðardrög hafa ekki verið birt í samráðsgátt stjórnvalda, það útilokar þó ekki að samráð hafi verið hafið fyrir luktum dyrum.

Þegar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir tók við sem matvælaráðherra 9. apríl í fyrra kvaðst hún ætla að vinna að því að tryggja strandveiðum sem flesta veiðidaga, en viðurkenndi þá þegar að ekki yrði unnt að tryggja öllum bátum 48 veiðidaga án þess að breyta lögum.

„Ég er ekki viss um að allir átti sig á því að það eru fá lög, held ég hreinlega, eins niðurnjörvuð í sjávarútveginum og um strandveiðar,“ sagði Bjarkey  þegar hún svaraði fyrirspurn þáverandi þingmanns Eyjólfs Ármannssonar (núverandi sveitastjórnar- og samgönguráðherra) um strandveiðar á Alþingi.

Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hét því í stefnuyfirlýsingu sinni að öllum strandveiðibátum yrðu tryggðir 12 veiðidagar í hverjum mánuði frá mái til ágúst, samtals 48 veiðidagar, strax nú í sumar.

Hingað til hefur þó þurft að stöðva strandveiðar áður en tímabilinu lýkur þar sem veiðiheimildir sem veiðunum er ráðstafað klárast. Er mikil eftirvænting meðal strandveiðisjómanna um að ríkisstjórnin standi við gefin fyrirheit.

Takmarkað svigrúm

Gildandi lög eru setja strandveiðum þröngar skorður og því óljóst til hverra úrræða verður gripið í nýrri reglugerð, en reglugerðir mega ekki stangast á við lög sett af Alþingi.

Kveður 6. grein laga um stjórn fiskveiða á um að ráðherra sé skylt að ráðstafa settu aflamagni í óslægðum bolfiski til strandveiða og að Fiskistofu sé skylt að stöðva veiðarnar ef umræddar veiðiheimildir klárist.

Einnig er í lögum skýrt kveðið á um 12 veiðidaga í mánuði og að óheimilt sé að stunda strandveiðar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Veiðiferð má ekki standa lengur en 14 stundir frá því að látið sé úr höfn og þar til lagt er við bryggju. Þá er ekki heimilt að landa meira en 650 þorskígildiskílóum í hverri veiðiferð og má ekki nýta fleiri en fjórar handfærarúllur.

Hanna Katrín lýsti ekki fyrir Ríkisútvarpinu hvaða ákvæði í nýrri reglugerð séu til þess líkleg að tryggja strandveiðibátum 48 veiðidaga og er því óljóst hvaða aðferð verði beitt.

Strandveiðibátur kemur til hafnar á Arnarstapa.
Strandveiðibátur kemur til hafnar á Arnarstapa. mbl.is/Alfons

Ýmsar hugmyndir uppi

Í umræðum um strandveiðar undanfarin misseri hafa heyrst hugmyndir um að veita veiðunum heimildir utan ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar um hámarksafla fiskveiðiársins og þannig sniða hjá því að Fiskistofa þurfi að stöðva veiðarnar.

Einnig hafa heyrst hugmyndir um að fækka handfærarúllum eða klukkustundum sem heimilt er að stunda veiðar í þeim tilgangi að minnka sóknina og drýgja þannig veiðiheimildirnar út strandveiðitímabilið.

Uppfært kl 19:10. Aðstoðarmaður ráðherra hefur áréttað að stefnt sé að því að frumvarp um strandveiðar verði afgreitt á vorþingi en að það mun ekki gilda fyrir strandveiðarnar nú í sumar. Skerpt hefur verið á orðalagi í inngangi fréttar vegna þessa.

mbl.is