Karl Héðinn Kristjánsson, forseti Roða, sem er ungliðadeild Sósíalistaflokksins, hefur ákveðið að segja af sér úr kosningastjórn Sósíalistaflokksins. Þetta gerir hann í mótmælaskyni eftir sameiginlegan fund stjórna sem fór fram á laugardag.
Karl Héðinn Kristjánsson, forseti Roða, sem er ungliðadeild Sósíalistaflokksins, hefur ákveðið að segja af sér úr kosningastjórn Sósíalistaflokksins. Þetta gerir hann í mótmælaskyni eftir sameiginlegan fund stjórna sem fór fram á laugardag.
Karl Héðinn Kristjánsson, forseti Roða, sem er ungliðadeild Sósíalistaflokksins, hefur ákveðið að segja af sér úr kosningastjórn Sósíalistaflokksins. Þetta gerir hann í mótmælaskyni eftir sameiginlegan fund stjórna sem fór fram á laugardag.
„Ástæðan er einföld: Ég get ekki lengur starfað innan forystu sem hunsar lýðræðislega gagnrýni, viðheldur óheilbrigðri menningu og refsar þeim sem benda á vandamálin,“ skrifar Karl í bréfi sem hann hefur sent flokksmönnum.
Karl sakar Gunnar Smára Egilsson, formann framkvæmdastjórnar flokksins, um trúnaðarbrot, ofríki og andlegt ofbeldi.
„Ég hef í mörg ár unnið af heilindum að því að byggja upp sterkan, lýðræðislegan og grasrótardrifinn flokk. Því miður hef ég í staðinn upplifað útskúfun fyrir að segja sannleikann um ofríki, andlegt ofbeldi og trúnaðarbrot formanns framkvæmdastjórnar, Gunnars Smára Egilssonar. Þeir sem verja hann hvað sem á dynur hafa tekið þátt í þeirri útskúfun – jafnvel á meðan þeir segjast styðja þolendur og berjast gegn ofbeldi. Ég er ekki einn um þessa upplifun og veit því miður um þó nokkur dæmi þar sem öflugir félagar fælast frá starfi vegna sambærilegra upplifanna,“ skrifar Karl.
Hann segir að á vinnuhelgi flokksins um uppgjör við kosningabaráttuna þá hafi félagsmenn og frambjóðendur komið úr öllum kjördæmum saman með það að markmiði að læra af reynslu kosningabaráttunnar.
Hann segir að mikill samhljómur hafi verið meðal þátttakenda um eftirfarandi:
„Í stað þess að vinna raunverulega með þessa vinnu ákvað lítill valdakjarni innan framkvæmdastjórnar að hunsa þessa niðurstöðu og boða til sameiginlegs fundar stjórna um niðurstöðu netkönnunar sem túlkuð var þannig að „allt væri í lagi.“ Gagnrýni var afskrifuð sem fáfræði og niðurrifsstarfsemi, og enn á ný var reynt að þagga niður í þeim sem vilja bæta flokkinn undir formerkjum þess að þeir sem gagnrýni séu fáfróðir eða hreinlega illa innrættir. Ég tek fram að á vinnuhelginni kom fram sú hugmynd að gott væri að flokkurinn gerði tíðari skoðanakannanir á meðal félagsmanna en þær verður að hanna vísindilega svo þær mæli raunverulega það sem við viljum mæla. Og að hunsa vinnu virkrar grasrótar, stjórnarmanna og frambjóðenda úr Alþingiskosningunum á þennan máta eru ömurleg vinnubrögð,“ skrifar Karl.
Hann segir að Gunnar Smári hafi sniðgengið vinnuhelgina þrátt fyrir að vera formaður framkvæmdastjórnar og oddviti flokksins í Reykjavík norður í síðustu kosningum.
„Þess í stað hefur hann, með dyggri aðstoð þeirra sem standa honum næst, haldið áfram að úthýsa gagnrýnisröddum og gaslýsa þá sem kalla eftir eðlilegri endurskoðun á störfum hans.
Tvö félög, Alþýðufélagið og Vorstjarnan, fá samanlagt nær öll framlög flokksins – en hvorugt þeirra starfar eftir opnum og lýðræðislegum reglum. Alþýðufélagið, sem á og rekur Samstöðina, er í raun einkafélag Gunnars Smára. Stjórn þess er sýndarstjórn, engir félagsfundir eru haldnir, og engin leið er fyrir almenna félagsmenn að hafa áhrif á starfsemi þess,“ skrifar Karl.