Sendinefnd Bandaríkjanna á leið til Rússlands

Úkraína | 12. mars 2025

Sendinefnd Bandaríkjanna á leið til Rússlands

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist bjartsýnn að sendinefnd Bandaríkjanna – sem lagt hefur af stað til Úkraínu – geti tryggt vopnahlé í stríði Rússlands í Úkraínu.

Sendinefnd Bandaríkjanna á leið til Rússlands

Úkraína | 12. mars 2025

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir stjórnvöld vilja ná samkomulagi við …
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir stjórnvöld vilja ná samkomulagi við Rússland án þess að það sé bundið nokkrum skilyrðum. Samsett mynd/AFP/Kremlin.ru

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist bjartsýnn að sendinefnd Bandaríkjanna – sem lagt hefur af stað til Úkraínu – geti tryggt vopnahlé í stríði Rússlands í Úkraínu.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist bjartsýnn að sendinefnd Bandaríkjanna – sem lagt hefur af stað til Úkraínu – geti tryggt vopnahlé í stríði Rússlands í Úkraínu.

Stjórnvöld í Kreml segjast bíða eftir upplýsingum um tillögu Bandaríkjanna og Úkraínu – sem samþykkt var í vikunni – og veittu engin svör um hvort Rússland myndi samþykkja vopnahlé.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir land sitt vera reiðubúið til að samþykkja vopnahléssamning og Bandaríkin hefðu gefið til kynna að þau myndu bregðast „harkalega“ við ef Pútín neitar samningnum.

„Jákvæð skilaboð“ borist frá Moskvu

„Fólk er á leiðinni til Rússlands í þessum töluðu orðum og vonandi getum við fengið vopnahlé frá Rússlandi,“ sagði Trump við fréttamenn á fundi í Hvíta húsinu með Micheal Martin, forsætisráðherra Írlands.

Samkvæmt stjórnvöldum í Bandaríkjunum verður Steve Witkoff, sendimaður Trumps og sáttasemjari í stríðinu á Gasa og í Úkraínu, í Moskvu í þessari viku.

Trump minntist ekki á hvort hann kæmi til með að ræða við Pútín en sagði „jákvæð skilaboð“ hafa borist frá Moskvu.

Sögðu tímabundið vopnahlé óviðunandi

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir stjórnvöld vilja ná samkomulagi við Rússland án þess að það sé bundið nokkrum skilyrðum.

„Það er það sem við viljum vita - hvort þeir séu tilbúnir til að gera þetta skilyrðislaust,“ sagði Rubio í flugvél á leið á G7 fund í Kanada.

„Ef svarið er „já“, þá vitum við að við höfum náð raunverulegum framförum og það eru raunverulegar líkur á friði. Ef svarið er „nei“, væri það mjög óheppilegt og það mun skýra fyrirætlanir þeirra,“ bætti hann við.

Rússneskar fréttastofur greindu nýlega frá því að yfirmenn CIA og rússnesku SVR-leyniþjónustunnar hefðu átt sitt fyrsta símtal í nokkur ár.

Kreml hefur ekki gert neinar athugasemdir við tillögu Bandaríkjanna og Úkraínu – sem samþykkt var á fundi í Sádi-Arabíu á þriðjudag – en rússneska utanríkisráðuneytið sagði fyrr í þessum mánuði að tímabundið vopnahlé væri óviðunandi.

„Vona að það verði ekki nauðsynlegt“

Trump segir „svakalegar“ refsiaðgerðir mögulegar ef Rússar neita samningi, en bætti við: „Ég vona að það verði ekki nauðsynlegt.“

„Ég get gert hluti fjárhagslega sem væru mjög slæmir fyrir Rússland. En ég vil ekki gera það vegna þess að ég vil ná fram friði,“ sagði hann.

„Allt veltur á því hvort Rússar vilji vopnahlé eða þeir vilji halda áfram að drepa fólk,“ segir Selenskí Úkraínuforseti. Segir hann Úkraínumenn enga trú hafa á því að átök muni hætta.

„Ég hef margoft lagt áherslu á þetta, enginn okkar treystir Rússum.“

mbl.is