Silfurrefurinn kveður í bili

Poppkúltúr | 12. mars 2025

Silfurrefurinn kveður í bili

Óskarsverðlaunaleikarinn og einn þekktasti silfurrefur Hollywood, George Clooney, gerði á dögunum dramatískar breytingar á útliti sínu.

Silfurrefurinn kveður í bili

Poppkúltúr | 12. mars 2025

George Clooney.
George Clooney. Ljósmynd/AFP

Óskarsverðlaunaleikarinn og einn þekktasti silfurrefur Hollywood, George Clooney, gerði á dögunum dramatískar breytingar á útliti sínu.

Óskarsverðlaunaleikarinn og einn þekktasti silfurrefur Hollywood, George Clooney, gerði á dögunum dramatískar breytingar á útliti sínu.

Clooney, sem hefur leyft gráu hárunum að njóta sín síðustu ár, var myndaður á götu í New York-borg á þriðjudag með nýlitað hár. Leikarinn, 63 ára, skartar nú súkkulaðibrúnu hári.

Útlitsbreytingin hefur vakið misjöfn viðbrögð en hún féll til að mynda ekki í kramið hjá eiginkonu Clooney, mannréttindalögfræðingnum Amal Clooney, og sjö ára gömlum tvíburum þeirra, Alexander og Ellu, að sögn leikarans.

„Hún hatar þetta og börnin hlæja bara að mér,“ sagði Clooney í samtali við blaðamann New York Times nýverið. 

Bandaríski leikarinn þreytir frumraun sína á Broadway á næstu vikum í leikverkinu Good Night and Good Luck, en Clooney fór með aðalhlutverkið í kvikmyndinni árið 2005. Clooney litaði hárið fyrir hlutverk sitt í sýningunni.

Leikritið verður frumsýnt þann 3. apríl næstkomandi.

Daily Mail

mbl.is