Daði: Vafasamt met Íslands með covid-aðgerðum

Alþingi | 13. mars 2025

Daði: Vafasamt met Íslands með covid-aðgerðum

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að Ísland eigi vafasamt met þegar komi að aðgerðum í kringum faraldurinn. Þær aðgerðir hafi skapað gríðarlega uppsveiflu sem endaði í þenslu og verðbólguskotinu sem nú er á niðurleið.

Daði: Vafasamt met Íslands með covid-aðgerðum

Alþingi | 13. mars 2025

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að Ísland eigi vafasamt met þegar komi að aðgerðum í kringum faraldurinn. Þær aðgerðir hafi skapað gríðarlega uppsveiflu sem endaði í þenslu og verðbólguskotinu sem nú er á niðurleið.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að Ísland eigi vafasamt met þegar komi að aðgerðum í kringum faraldurinn. Þær aðgerðir hafi skapað gríðarlega uppsveiflu sem endaði í þenslu og verðbólguskotinu sem nú er á niðurleið.

Þetta var meðal þess sem fram kom í sérstökum umræðum um stöðu efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar á þinginu í dag.

Deilt um hvort tekið var við góðu búi

Vilhjálmur Árnason hafði orð á því að staðan í íslenskum ríkisfjármálum væri góð og að það væri gott bú sem núverandi ríkisstjórn tæki við. Anna Lára Jónsdóttir og Dagur B. Eggertsson, þingmenn Samfylkingarinnar, voru hins vegar ekki á þessari stöðu og talaði Anna Lára meðal annars um marga lágpunkta hjá síðustu ríkisstjórn í efnahagsmálum og að ríkissjóður hefði verið rekinn stanslaust í halla frá 2019.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hóf umræðuna og í seinni ræðu sinni kom hann inn á þessi mál og rifjaði upp að það hafi farið út 350 milljarðar í faraldrinum vegna sérstakra aðgerða ríkisstjórnarinnar. Hafi ríkisstjórnin þó skilað 100 milljarða betri afkomu en lagt var upp með í fjárlögum.

„Dýrustu og lengstu covid-aðgerðirnar“

„Ég hvet núverandi ríkisstjórn til þess að ná þeim árangri. Þá skal ég klappa fyrir þeim,“ sagði Sigurður.

Daði greip þessi orð á lofti í svari sínu. „Ísland á það vafasama met að hafa verið með dýrustu og lengstu covid-aðgerðirnar sem enduðu í gríðarlegri uppsveiflu sem að jafnaði er kallað þensla og verðbólguskot.“

Sagðist hann gera sér grein fyrir að auðveldara væri að sjá slíkt eftir á heldur en fyrir fram. „Það breytir því ekki að þessar aðgerðir urðu okkur dýrkeyptar og það að þær hafi kostað 100 milljörðum minna en stóð til er fagnaðarefni.“

mbl.is